Listasafn Reykjavíkur

Fréttir / tilkynningar

TEIKNANDI RÓLA OG LEYNDARDÓMAR LÍMBANDSINS. SUNNUDAG 18. OKTÓBER KL. 14

Smiðjan hentar allri fjölskyldunni þar sem gerðar verða spennandi tilraunir með venjulegt límband og óvenjulega rólu sem teiknar! Allt hverfist þetta um pendúla og ljós.

Róla er í raun tveggja tóna pendúll (hengd upp á tveimur stöðum) sem býr yfir skemmtilegu hreyfimynstri. Ef penni er festur við hana kemur í ljós að hægt er að myndgera þessa hreyfingu.

Límband virðist í fyrstu ekki búa yfir miklum töfrum en þegar ljós er skoðað gegnum það með ákveðnum síum og mismunandi lög af límbandi sett saman, kemur annað í ljós...eða kemur óvænt ljós í ljós!
Ljóseiginleikar límbands kallast tvíbrot og með því að horfa á límband með ákveðnum síum sér maður óvænta litadýrð sem annars virðist ekki vera til staðar.

Á sýningunni Blik á Kjarvalsstöðum eru sýnd verk eftir kunna, íslenska listamenn sem beita sjónhverfingum og -blekkingum í verkum sínum. Í tengslum við smiðjuna verður sýningin skoðuð og rýnt í töfrana að baki verkanna.

Prenta Til baka




 

 

Hafnarhús

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00
fimmtudaga 10:00 - 20:00
 

Kjarvalsstaðir

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00

 

Ásmundarsafn

Heimsókn í safnið
Opið : 13:00-17:00