Fréttir / tilkynningar

Listasafn Islands

FRÁ TORFBÆ TIL FORSÍÐU TIME. HAFNARHÚS FIMMTUDAG 22. OKTÓBER KL. 20

An upcoming exhibition

Cahill átti farsælan og merkilegan feril í menningarlífi Bandaríkjanna og var meðal annars forstöðumaður Museum of Modern Art (MoMA) í New  York. Forseti Bandaríkjanna skipaði hann stjórnanda WPA ( Federal Art Project) þar sem hlutverk hans var að hjálpa sveltandi listamönnum í tíð heimskreppunnar  miklu. 
Cahill er talinn hafa átt stóran þátt í því að miðja listheimsins færðist frá París til New York. Hann strauk að heiman sem táningur en fann að lokum íslenska móður sína og systur í Winnipeg hálfri öld síðar. Hans Kristján hefur rannsakað ævi Holgers en í myndinni birtist meðal annars viðtal við eftirlifandi einkabarn Holgers. Donald Gislason mun kynna myndina og taka þátt í umræðum og fyrirspurnum að henni lokinni. Myndin var fyrst sýnd á Alþjóðlegri kvikmyndahátíð í Reykjavík fyrir skömmu en hún er nú sýnd hér með íslenskum texta í fyrsta sinn. Myndin er 55 mínútur að lengd.

Prentað af vef Listasafns Reykjavíkur, www.listasafnreykjavikur.is þann 17.24.2012