Fréttir / tilkynningar
HVAÐ ER SJÁLFSMYND? – FJÖLSKYLDUSMIÐJA. SUNNUDAG 25. OKTÓBER KL. 15
An upcoming exhibitionÍ smiðjunni mun Lóa Hlín skoða sýninguna út frá hugmyndum okkar um sjálfsmyndina. Sjálfsmyndir hafa verið hluti af sjálfsskoðun og tjáningu mannsins alveg frá því hann fyrst leit spegilmynd sína í sléttu vatnsyfirborði. En sjáum eitthvað meira en spegillinn sýnir okkur? INNPÖKKUÐ HERBERGI Fígúrur og málverk hins heimskunna, japanska popplistamanns, Yoshitomo Nara (1959) hafa farið sigurför um heiminn undanfarna tvo áratugi. Málverk Nara tengjast mjög japanskri teiknimyndahefð og popplist en umgjörð verkanna er breytileg. Í Hafnarhúsinu eru verkin sýnd í sérsmíðuðum flutningskössum sem hægt er að skoða inn um opnar hliðar, glugga eða gægjugöt. Inn í kössunum eru lítil og stór málverk af grallaralegum smástelpum eða furðuverum ásamt þrívíðum verkum, sem minna helst á leikföng. LÓA HLÍN HJÁLMTÝSDÓTTIR Lóa Hlín Hjálmtýrsdóttir stundaði nám við Fjölbrautaskólann í Breiðholti, Listaháskóla Íslands, Parsons í Bandaríkunum og Kungliga Konsthögskolan í Svíþjóð. Hún hefur tekið þátt í fjölda myndlistasýninga og myndskreytt barnabækur. Lóa Hlín er stundakennari við Myndlistaskóla Reykjavíkur og hún er einnig meðlimur í hljómsveitinni FM Belfast.
Prentað af vef Listasafns Reykjavíkur, www.listasafnreykjavikur.is þann 09.11.2012
|