Fréttir / tilkynningar

Listasafn Islands

HÖGNA SIGURÐARDÓTTIR EFNI OG ANDI Í BYGGINGARLIST. LAUGARDAG 7. NÓVEMBER KL. 16

An upcoming exhibition

HÖGNA SIGURÐARDÓTTIR
Högna er vel þekkt sem frumkvöðull á sviði byggingarlistar á Íslandi. Hún hefur með verkum sínum haft mikil áhrif á sjónrænt umhverfi okkar og þróun íslenskrar byggingarlistar, ekki síst með listrænni tilvísun í byggingarlistararfinn, dirfsku í notkun náttúrulegra efna auk skúlptúrel formsköpun bygginga sinna.

Hún var fyrst kvenna til að starfa sem arkitekt hérlendis, og hefur verið óhrædd við að fara frumlegar leiðir að verkum sínum, þar sem finna má tilvísun í þekkta erlenda arkitekta 20. aldarinnar -  svo sem Le Corbusier, Louis Kahn, Tadao Ando og fleiri, en jafnframt haldið á lofti afar persónulegri túlkun og nálgun að verkum sínum. Högna vakti á sínum tíma athygli fyrir að vinna byggingu og innviði hennar sem eina heild og steypa þannig innréttingar, húsgögn og blómaker með innra rými byggingarinnar, auk þess að forma nánasta umhverfi hennar sem órjúfanlegan hluta af heildarmynd hins manngerða umhverfis.

Högna útskrifaðist sem arkitekt frá École Nationale Supérieure des Beaux-Arts í París árið 1960 og hlaut sérstaka viðurkenningu skólans fyrir lokaverkefni sitt Garðyrkjubýli í Hveragerði. Þá þegar var áhugi hennar á sérkennum landsins, íslenskrar náttúru og veðurfars innblástur í frumlega og sérstaka byggingarlist, sem hún þróaði áfram í seinni verkum sínum.

Högna hefur búið og starfað í Frakklandi allt frá námsárunum en jafnframt því skapað mörg bestu verka sinna hérlendis. Henni hefur hlotnast fjöldi alþjóðlegra viðurkenninga fyrir verk sín, og tók meðal annars sæti í hinni virtu Frönsku Byggingarlistarakademíu árið 1992, auk innlendra viðurkenninga svo sem menningarverðlauna DV í byggingarlist 1994 og heiðursorða Sjónlistaverðlauna Listasafns Akureyrar 2007. Íbúðarhús sem hún teiknaði að Bakkaflöt í Garðabæ hefur verið valið sem ein af 100 merkustu byggingum 20.aldarinnar í Evrópu. Árið 2008 var Högna Sigurðardóttir kosinn heiðursfélagi Arkitektafélags Íslands. Í tengslum við sýninguna verður gefin út ítarleg sýningarskrá um verk Högnu.

Sýningarstjóri er Guja Dögg Hauksdóttir, deildarstjóri byggingarlistardeildar Listasafns Reykjavíkur og samstarfshópur er skipaður þeim Önnu Sóleyju Þorsteinsdóttur, Laufeyju Agnarsdóttur, Magnúsi Jenssyni og Sigríði Maack, arkitektum.

Þjóðminjasafni Íslands eru færðar sérstakar þakkir fyrir framlag sitt til sýningarinnar.

DAGSKRÁ
Málþing, laugardaginn 14. nóvember kl. 14-17
Þátttakendur með erindi í pallborði verða Steinþór Kári Kárason, Jes Einar Þorsteinsson, Margrét Harðardóttir, arkitektar og Þóra Sigurðardóttir listamaður.

Sýningarstjóraspjall  laugardaginn 28. nóvember kl. 15
Guja Dögg Hauksdóttir.

Fyrirlestur  þriðjudaginn 12. janúar kl. 20
Pétur H. Ármannsson arkitekt.

Sýningarstjóraspjall laugardaginn 23. janúar kl. 15
Guja Dögg Hauksdóttir. 

Styrktaraðilar sýningarinnar:
Minningarsjóður Dr. Phil. Guðjóns Samúelssonar, Mennta- og menningarmálaráðuneyti Íslands, Húsafriðunarnefnd, Bær listasetur, Myndhöfundasjóður Íslands, Íbúðalánasjóður Íslands, Franska sendiráðið á Íslandi, Argos ehf., Arkís, Arkibúllan arkitektar, Arkitektar Hjördís & Dennis ehf , Arkiteo ehf, Arkitektur.is, Arkþing ehf , Á stofunni arkitektar, Björgun ehf, BYKO, Einrúm ehf arkitektar, Framkvæmdasýsla ríkisins, Garðabær, Gláma/Kím arkitektar, Kanon arkitektar ehf, Kisan Concept Store, Listaháskóli Íslands - hönnunar- og arkitektúrdeild, Hornsteinar arkitektar ehf, Högnur, PK arkitektar ehf, Plúsarkitektar, Skipulags- og byggingarsvið Reykjavíkurborgar, Studio Granda arkitektar, Tark teiknistofan ehf , Teiknistofan Tröð ehf, Vestmannaeyjabær.

Þakkir:
Format-Akron ehf, Hönnunarmiðstöð Íslands, Húsasmiðjan, Leturprent ehf , Pixel prentþjónusta, Skipulags- og umhverfissvið Kópavogs, Tækni- og umhverfissvið Garðabæjar, Umhverfis- og framkvæmdasvið Vestmannaeyjabæjar.



Prentað af vef Listasafns Reykjavíkur, www.listasafnreykjavikur.is þann 17.27.2012