Listasafn Reykjavíkur

Fréttir / tilkynningar

SKAPANDI FYRIRTÆKI FIMMTUDAG 12. NÓVEMBER KL. 20

FYRIRLESARAR
Margrét Sigrún Sigurðardóttir er aðjúnkt við Viðskiptafræðideild Háskóla Ísland, þar sem hún veitir Rannsóknarmiðstöð um skapandi greinar jafnframt forystu. Hún fjallar um bókina Penny for your thoughts – 10 lessons to help you invest in and grow with a creative business.
Höfundar bókarinnar hafa um árabil stundað rannsóknir á sviði skapandi atvinnugreina. Þær rannsóknir hafa leitt í ljós gagnkvæma fordóma í lista- og viðskiptaheiminum og telja höfundar að vinna mætti gegn fordómunum með því að skapa samræðugrundvöll milli þessara tveggja heima. Bókin er byggð á viðtölum við fjölda fólks sem starfar í fyrirtækjum í skapandi rekstri á Norðurlöndum, allt frá einyrkjum upp í fyrirtæki skráð á hlutabréfamarkaði.
Auk Margrétar eru höfundar bókarinnar Tobias Nielsén ráðgjafi og útgefandi og Dominic Power prófessor í hagrænni landafræði við Háskólann í Uppsölum.

Helga Valfells er sérfræðingur fjárfestinga hjá Nýsköpunarsjóði og mun fjalla um fjárfestingastefnu Nýsköpunarsjóðs og Frumtaks.

Gunnar Hilmarsson fatahönnuður og frumkvöðull hjá Andersen&Lauth segir frá uppbyggingu fyrirtækisins. Fyrirtækið hefur byggst hratt upp undanfarin ár en Frumtak fjárfesti í fyrirtækinu fyrr á þessu ári.

Prenta Til baka




 

 

Hafnarhús

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00
fimmtudaga 10:00 - 22:00
 

Kjarvalsstaðir

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00

 

Ásmundarsafn

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00-16:00