Listasafn Reykjavíkur

Fréttir / tilkynningar

MÁLÞING UM HÖGNU SIGURÐARDÓTTUR. LAUGARDAG 14. NÓVEMBER KL. 14-17

Þátttakendur með erindi í pallborði eru arkitektarnir Steinþór Kári Kárason, Jes Einar Þorsteinsson og Margrét Harðardóttir og listamaðurinn  Þóra Sigurðardóttir. Erindi Steinþórs ber heitið Högna, Kahn og herbergin, erindi Jes Einars Námið í París og samstarfið við Högnu, Margrétar Tímalaus minni og erindi Þóru Allt kemur heim og saman.

HÖGNA SIGURÐARDÓTTIR
Högna Sigurðardóttir arkitekt ánafnaði Listasafni Reykjavíkur nýlega öllu teikningasafni sínu. Í tilefni af þeirri rausnarlegu gjöf var sett upp sýning á byggingarlist hennar á Kjarvalsstöðum,  með áherslu á íslensk verk, byggð sem óbyggð. Sýningarstjóri er Guja Dögg Hauksdóttir en sýningin er unnin í náinni samvinnu við Arkitektafélag Íslands.

Sjá hér nánar um sýninguna.

Prenta Til baka




 

 

Hafnarhús

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00
fimmtudaga 10:00 - 20:00
 

Kjarvalsstaðir

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00

 

Ásmundarsafn

Heimsókn í safnið
Opið : 13:00-17:00