Listasafn Reykjavíkur

Fréttir / tilkynningar

MÁLÞING UM MANGA, MEÐVITUND OG MARKAÐSFRÆÐI. SUNNUDAG 15. NÓVEMBER KL. 15

ERINDI
Í erindi sínu fjallar Ragnheiður Ösp Sigurðardóttir vöruhönnuður um sætleikann frá ýmsum hliðum; Hvaðan kemur hann, hvaða áhrif hefur hann á okkur, hverjar eru vísinda- og markaðsfræðilegar hliðar sætleikans og hvernig hefur hann þróast í tímans rás? Hvað gerist þegar sætu er blandað við
mannlegt eðli og hverjar eru hinar myrku hliðar sætleikans (Kawaii Noir)?

Úlfhildur Dagsdóttir  bókmenntafræðingur setur verk Yoshitoma Nara í samhengi við japanska myndlista- og myndasöguhefð í erindi sínu Manga! Manga? Myndrænar frásagnir í máli og myndum. Myndræn frásögn á sér ríka hefð í Japan og er japanska myndasagan, Manga ein þeirra. En Manga er ekki endilega það sama og Manga!
 
Guðmundur Oddur Magnússon prófessor í grafískri hönnun við Listaháskóla Íslands heldur að lokum tölu um hin lítt könnuðu svæði undirmeðvitundarinnar, ímyndunaraflsins og innsæisins.

Málþingið fer fram sunnudaginn 15. nóvember kl. 15 og er öllum opið.

Prenta Til baka




 

 

Hafnarhús

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00
fimmtudaga 10:00 - 20:00
 

Kjarvalsstaðir

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00

 

Ásmundarsafn

Heimsókn í safnið
Opið : 13:00-17:00