Fréttir / tilkynningar
TRÍÓ REYKJAVÍKUR Á HÁDEGISTÓNLEIKUM. FÖSTUDAG 20. NÓVEMBER KL. 12:15

Tónleikarnir verða haldnir föstudaginn 20. nóvember kl. 12:15 og vara í um 45 mínútur.
Listasafn Reykjavíkur og Tríó Reykjavíkur hafa um nokkurt skeið verið í samstarfi um hádegistónleikaröð á Kjarvalsstöðum. Aðgangur á tónleikana er gjaldfrjáls og er efnisskráin jafnan samsett af kunnum, klassískum perlum.
Tríó Reykjavíkur skipa Guðný Guðmundsdóttir fiðla, Gunnar Kvaran selló og Peter Maté píanó.
AÐGANGUR ER ÓKEYPIS OG ALLIR VELKOMNIR
EFNISSKRÁ
Antonin Dvorák (1841-1904):
Rondo 0p.94 fyrir selló og píanó
Josef Suk (1874-1935):
Píanótríó 0p. 2 í c-moll: Allegro, Andante, Vivace
Josef Suk:
Písen lásky (Ástarljóð) fyrir fiðlu og píanó
Antonin Dvorák:
Tveir þættir úr píanótríói op. 90 (Dumky): Andante moderato, Allegro
Prenta Til baka