Fréttir / tilkynningar
TRÍÓ REYKJAVÍKUR Á HÁDEGISTÓNLEIKUM. FÖSTUDAG 20. NÓVEMBER KL. 12:15
An upcoming exhibition Tónleikarnir verða haldnir föstudaginn 20. nóvember kl. 12:15 og vara í um 45 mínútur. Listasafn Reykjavíkur og Tríó Reykjavíkur hafa um nokkurt skeið verið í samstarfi um hádegistónleikaröð á Kjarvalsstöðum. Aðgangur á tónleikana er gjaldfrjáls og er efnisskráin jafnan samsett af kunnum, klassískum perlum. Tríó Reykjavíkur skipa Guðný Guðmundsdóttir fiðla, Gunnar Kvaran selló og Peter Maté píanó. AÐGANGUR ER ÓKEYPIS OG ALLIR VELKOMNIR EFNISSKRÁ Antonin Dvorák (1841-1904): Rondo 0p.94 fyrir selló og píanó Josef Suk (1874-1935): Píanótríó 0p. 2 í c-moll: Allegro, Andante, Vivace Josef Suk: Písen lásky (Ástarljóð) fyrir fiðlu og píanó Antonin Dvorák: Tveir þættir úr píanótríói op. 90 (Dumky): Andante moderato, Allegro
Prentað af vef Listasafns Reykjavíkur, www.listasafnreykjavikur.is þann 17.29.2012
|