Listasafn Reykjavíkur

Fréttir / tilkynningar

FYRIRLESTUR, SPJALL OG GJÖRNINGUR RYANS PARTEKA. SUNNUDAG 22. NÓVEMBER KL. 15

Á sýningunni sinni tengir Ryan tíma og rúm saman við fortíð, nútíð og framtíð. Innsetningin stjórnast af tölvuútreikningum á birtu og myrkri í Reykjavík næstu þúsund árin. Þrír bogadregnir gluggar fyllast og tæmast af blóði sem dælt er upp með tækjum sem slá í takt við tilbúna sólarupprás og sólarlag. Á meðan ljós flæðir inn í rýmið og staldrar við í mislangan tíma, gleypir myrkrið herbergið á svipaðan hátt. Athöfnin er gædd lágstemmdu hljóði úr rafmagnsgítar og málmhljóðfæri sem innleiðir ákveðinn takt í verkið meðfram hinu hátíðlega upphafi og endi daganna.

Ryan Parteka hefur búið og starfað í Reykjavík frá árinu 2005. Hann lauk mastersprófi frá Rijksakademie van Beeldende Kunsten í Amsterdam árið 2005 eftir að hafa stundað framhaldsnám í rannsóknum á tímaháðri myndlist við Utrecht listaháskólann í Hollandi.

Í D-sal Hafnarhússins hefur staðið yfir um nokkurt skeið sýningaröð sem nefnd er eftir einum sýningarsal hússins. Með henni vill Listasafn Reykjavíkur vekja athygli á efnilegum myndlistarmönnum, sem ekki hafa áður haldið einkasýningu í stærri söfnum landsins. Listamennirnir vinna allir ný verk fyrir salinn.

Dagskráin fer fram á ensku.
Ókeypis aðgangur og allir velkomnir.

Prenta Til baka




 

 

Hafnarhús

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00
fimmtudaga 10:00 - 20:00
 

Kjarvalsstaðir

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00

 

Ásmundarsafn

Heimsókn í safnið
Opið : 13:00-17:00