Fréttir / tilkynningar
FYRIRLESTUR, SPJALL OG GJÖRNINGUR RYANS PARTEKA. SUNNUDAG 22. NÓVEMBER KL. 15
An upcoming exhibitionÁ sýningunni sinni tengir Ryan tíma og rúm saman við fortíð, nútíð og framtíð. Innsetningin stjórnast af tölvuútreikningum á birtu og myrkri í Reykjavík næstu þúsund árin. Þrír bogadregnir gluggar fyllast og tæmast af blóði sem dælt er upp með tækjum sem slá í takt við tilbúna sólarupprás og sólarlag. Á meðan ljós flæðir inn í rýmið og staldrar við í mislangan tíma, gleypir myrkrið herbergið á svipaðan hátt. Athöfnin er gædd lágstemmdu hljóði úr rafmagnsgítar og málmhljóðfæri sem innleiðir ákveðinn takt í verkið meðfram hinu hátíðlega upphafi og endi daganna. Ryan Parteka hefur búið og starfað í Reykjavík frá árinu 2005. Hann lauk mastersprófi frá Rijksakademie van Beeldende Kunsten í Amsterdam árið 2005 eftir að hafa stundað framhaldsnám í rannsóknum á tímaháðri myndlist við Utrecht listaháskólann í Hollandi. Í D-sal Hafnarhússins hefur staðið yfir um nokkurt skeið sýningaröð sem nefnd er eftir einum sýningarsal hússins. Með henni vill Listasafn Reykjavíkur vekja athygli á efnilegum myndlistarmönnum, sem ekki hafa áður haldið einkasýningu í stærri söfnum landsins. Listamennirnir vinna allir ný verk fyrir salinn. Dagskráin fer fram á ensku. Ókeypis aðgangur og allir velkomnir.
Prentað af vef Listasafns Reykjavíkur, www.listasafnreykjavikur.is þann 17.30.2012
|