Fréttir / tilkynningar
PECHA KUCHA NIGHT REYKJAVÍK #4. FIMMTUDAG 26. NÓVEMBER KL. 20
Lífstíll og hönnun á Íslandi verður þema Pecha Kucha kvöldsins í Hafnarhúsinu á fimmtudagskvöld kl. 20. Rúmlega tíu manns stíga á stokk og láta í ljós eða kynna viðfangsefnið í máli og myndum.
Pecha Kucha er nokkurs konar ör-fyrirlestraform en orðið er japanskt og þýðir létt spjall. Hvert erindi tekur 6,40 mínútur og meðan á flutningi þess stendur eru sýndar tuttugu skyggnur sem hver um sig lifir í tuttugu sekúndur. Búast má við fjörugum fyrirlestrum og nýjum og ferskum hugmyndum sem eiga erindi við alla.
Sjá nánar hér.
Prenta Til baka