Fréttir / tilkynningar
PECHA KUCHA NIGHT REYKJAVÍK #4. FIMMTUDAG 26. NÓVEMBER KL. 20
An upcoming exhibitionLífstíll og hönnun á Íslandi verður þema Pecha Kucha kvöldsins í Hafnarhúsinu á fimmtudagskvöld kl. 20. Rúmlega tíu manns stíga á stokk og láta í ljós eða kynna viðfangsefnið í máli og myndum. Pecha Kucha er nokkurs konar ör-fyrirlestraform en orðið er japanskt og þýðir létt spjall. Hvert erindi tekur 6,40 mínútur og meðan á flutningi þess stendur eru sýndar tuttugu skyggnur sem hver um sig lifir í tuttugu sekúndur. Búast má við fjörugum fyrirlestrum og nýjum og ferskum hugmyndum sem eiga erindi við alla. Sjá nánar hér.
Prentað af vef Listasafns Reykjavíkur, www.listasafnreykjavikur.is þann 17.30.2012
|