Fréttir / tilkynningar

Listasafn Islands

HÖGNA SIGURÐARDÓTTIR – SÝNINGARSTJÓRASPJALL. Laugardag 28. nóvember kl. 15

An upcoming exhibition

HÖGNA SIGURÐARDÓTTIR
Fyrr á þessu ári ánafnaði Högna Sigurðardóttir Listasafni Reykjavíkur öllu teikningasafni sínu og er sýningin sett upp í tilefni af því. Högna er vel þekkt sem frumkvöðull á sviði byggingarlistar á Íslandi. Hún hefur með verkum sínum haft mikil áhrif á sjónrænt umhverfi okkar og þróun íslenskrar byggingarlistar, ekki síst með listrænni tilvísun í byggingarlistararfinn, dirfsku í notkun náttúrulegra efna auk skúlptúrel formsköpun bygginga sinna. Hún var fyrst kvenna til að starfa sem arkitekt hérlendis, og hefur verið óhrædd við að fara frumlegar leiðir að verkum sínum, þar sem finna má tilvísun í þekkta erlenda arkitekta 20. aldarinnar -  svo sem Le Corbusier, Louis Kahn, Tadao Ando og fleiri, en jafnframt haldið á lofti afar persónulegri túlkun og nálgun að verkum sínum. Högna vakti á sínum tíma athygli fyrir að vinna byggingu og innviði hennar sem eina heild og steypa þannig innréttingar, húsgögn og blómaker með innra rými byggingarinnar, auk þess að forma nánasta umhverfi hennar sem órjúfanlegan hluta af heildarmynd hins manngerða umhverfis. 
Sýningin er unnin í samstarfi við Arkitektafélag Íslands. Þjóðminjasafn Íslands lagði sýningunni til myndefni.
                                   

Prentað af vef Listasafns Reykjavíkur, www.listasafnreykjavikur.is þann 09.22.2012