Listasafn Reykjavíkur

Fréttir / tilkynningar

FJÖLSKYLDUDAGSKRÁ: Sjónauki Galileós, þróunarkenning Darwins og ljósapera Edison. SUNNUDAG 29. NÓVEMBER KL. 15

GALÍLEÓ, DARWIN OG EDISON
Í spjalli sínu beinir Þorsteinn sjónum að þremur mönnum Galíleó, Darwin og Edison.
Galíleós er minnst um allan heim á þessu ári vegna þess að fjögur hundruð ár eru liðin síðan hann beindi sjónauka að fyrirbærum himinsins og sagði eftirminnilega frá því sem hann sá. Galíleó var skarpskyggn athugandi og gerði ýmsar tilraunir auk þess sem hann barðist ötullega fyrir sólmiðjukenningu Kópernikusar og fyrir sjálfstæði vísinda gagnvart kirkju og trúarbrögðum.
Á árinu er einnig 200 ára afmæli Charles Darwins og 150 ár síðan bók hans Uppruni tegundanna kom út. Þar setti Darwin fram þróunarkenninguna sem oft er kennd við hann og olli straumhvörfum í líffræði. Hún hefur oft verið umdeild af ýmsum ástæðum en nú á dögum er hún fullgildur þáttur í þekkingu okkar á lífverum.
Thomas Alva Edison var snjall uppfinningamaður og gerði margar uppfinningar sem enn eru notaðar í daglegu lífi okkar. Frægust og mikilvægust þeirra er líklega ljósaperan sem olli byltingu í lýsingu innandyra og í borgum en einnig má nefna hljóðritann sem þótti galdri líkastur í þá daga. Einnig má nefna uppgötvanir í símtækni og raftækni. Prenta Til baka




 

 

Hafnarhús

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00
fimmtudaga 10:00 - 20:00
 

Kjarvalsstaðir

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00

 

Ásmundarsafn

Heimsókn í safnið
Opið : 13:00-17:00