Listasafn Reykjavíkur

Fréttir / tilkynningar

GARÐAR CORTES OG HVÍT JÓL Á KJARVALSSTÖÐUM. 2. OG 3. DESEMBER KL. 12:15

Undanfarin misseri hefur Garðar dregið mjög úr tónleikahaldi en nú gefst aðdáendum hans einstakt tækifæri til að hlýða á söng hans í afslöppuðu andrúmslofti Kjarvalsstaða, umlukin verkum eftir meistara Kjarval.
Garðar og sænski píanóleikarinn Robert Sund hafa starfað reglulega saman frá árinu 1980 og lagt áherslu á flutning á þekktum og vinsælum dægurlagaperlum. Saman hafa þeir gefið út þrjá geisladiska með þekktum sönglögum, jólalögum og negrasálum. Á Kjarvalsstöðum flytja þeir brot úr því besta af geisladiskunum auk nýrra laga, en áhersla er lögð á innlend og erlend jólalög eins og Happy Christmas, Mary’s Boy Child, Rúdolf með rauða nefið, Bella notte, When You Wish Upon a Star, Ó Helga nótt svo fátt eitt sé nefnt.
Garðar Cortes þarf vart að kynna fyrir landsmönnum en hann hefur á síðari árum beint kröftum sínum æ meira að hljómsveitastjórn. Garðar er skólastjóri Söngskólans í Reykjavík og stjórnandi Óperukórsins. Robert Sund hefur um langt skeið kennt við Tónlistarháskólann í Stokkhólmi, leikið á píanó, útsett, samið og stjórnað en leiðir tvímenningana lágu fyrst saman á norrænu kóramóti þar sem þeir voru báðir stjórnendur.
Tónleikarnir hefjast kl. 12:15 og standa yfir í um 40 mínútur.

Aðgangseyrir er kr. 1.000,- en frítt er fyrir eldri borgara og námsmenn.

Fyrir og eftir tónleika býður veitingasalan á Kjarvalsstöðum upp á úrval rétta á hagkvæmu verði.

Prenta Til baka




 

 

Hafnarhús

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00
fimmtudaga 10:00 - 22:00
 

Kjarvalsstaðir

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00

 

Ásmundarsafn

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00-16:00