Fréttir / tilkynningar
SÝNING FRAMHALDSSKÓLANEMA. FIMMTUDAG 3. DESEMBER KL. 20

Námskeiðið, sem nefnist krÚtt og kvikYndi, hefur staðið yfir síðustu fjórar vikur í Listasafni Reykjavíkur-Hafnarhúsi, en flestir þátttakendur eru á listnámsbraut framhaldsskólanna. Á námskeiðinu var unnið út frá yfirstandandi sýningum Hafnarhússins; með bækur, notaðan pappír og vaxliti í líkingu við aðferðir Yoshitomo Nara á sýningunni, Innpökkuð herbergi og einnig var unnið með rými líkt og Egill Sæbjörnsson gerir í sýningunni Staðarandi og frásögn.
Sýningin verður aðeins opin þetta eina kvöld!
Hafnarhúsið er opið til kl. 22 öll fimmtudagskvöld.
Aðgangur ókeypis.
Prenta Til baka