Fréttir / tilkynningar

Listasafn Islands

FRIÐUR OG FJÖLMENNING Í VIÐEY. SUNNUDAG 6. DESEMBER KL. 14:30- 16:30

An upcoming exhibition

Friðarsúlan

Hér er einstakt tækifæri fyrir fjölskylduna að sameinast yfir gefandi og skapandi verkefni og njóta friðar og samveru í notalegu umhverfi. Áhersla er lögð á að sameina vini og fjölskyldur, fjölbreytileika og friðarstund í fallegu umhverfi.

Ferja fer frá Skarfabakka kl. 13:15, 14:15 og 15:15 og frá Viðey á klukkutíma fresti frá kl. 13:30 – 17:30. Ferjutollur og þátttökugjald er kr. 1000 fyrir fullorðna og kr. 500 fyrir börn.

Innifalið í verðinu eru kerti og skreytiefni. Í Viðeyjarstofu verða ýmis skemmtileg tilboð á veitingum í tilefni dagsins.

Dagskráin er samstarfsverkefni Viðeyjar, Borgarbókasafnsins og Listasafns Reykjavíkur.

Sjá nánar á heimasíðu Viðeyjar.
Um Friðarsúluna.



Prentað af vef Listasafns Reykjavíkur, www.listasafnreykjavikur.is þann 17.35.2012