Fréttir / tilkynningar

Listasafn Islands

ERRÓ LEIÐSÖGN MEÐ SIGFRÍÐI BJÖRNSDÓTTUR. SUNNUDAG 13. DESEMBER KL. 15

An upcoming exhibition

Í leiðsögn Sigfríðar verður sá hluti sýningarinnar, sem snýr að tónlist skoðaður sérstaklega og rýnt í sögu og verk tónskáldanna sem þar birtast og hlustað á tóndæmi. Mörg verkanna sem tilheyra þessum hluta sýningarinnar eru úr syrpunni Kontrapunktur sem hann vann á árunum 1978 -1983 þar sem viðfangsefnið eru tónskáld frá 16. öld allt fram á okkar tíma.
Meðal þeirra tónskálda sem fjallað verður um eru Brahms, Wagner, Stravinsky og Schumann. Verkin á sýningunni Mannlýsingar eru af ýmsum þekktum einstaklingum heims á sviði stjórnmála, vísinda, bókmennta og lista og endurspegla ímyndir og hugmyndir þeirra. Sýningarstjóri er Danielle Kvaran.

SIGFRÍÐUR BJÖRNSDÓTTIR
Sigfríður Björnsdóttir er framkvæmdastjóri Íslenskrar tónverkamiðstöðvar. Hún hefur komið víða við á tónlistarsviðinu, kennt tónmennt í tæpan áratug, verið tónlistargagnrýnandi í útvarpi og blöðum, kennt við Söngskólann í Reykjavík, KHÍ og núna síðast LHÍ. Hún hefur haldið fyrirlestra og námskeið um tónmenntakennslu og tekið þátt í fjölþjóðlegum verkefnum á því sviði.



Prentað af vef Listasafns Reykjavíkur, www.listasafnreykjavikur.is þann 17.36.2012