Listasafn Reykjavíkur

Fréttir / tilkynningar

Heiminum breytt á fimm tímum með Ykon. Laugardag 19. des kl. 12 - 17

Ykon

Ykon leikurinn er heimseftirlíkingarleikur fyrir allt að 30 þátttakendur. Leikurinn byggir á einfaldri hugsunartilraun sem felst í því að ímynda sér þér að heimurinn stöðvist algjörlega. Á meðan heimurinn er úti geta þú og leikfélagar þínir breytt honum að vild. Hverju viltu breyta? Hvernig getur þú sannfært andstæðingana um að þínar breytingar séu til góðs og hvað gerist í kjölfarið?

Á sjöunda áratug síðustu aldar þróaði Buckminster Fuller leikinn World Game sem var ætlað að vera megináætlun fyrir jörðina, einskonar vísindaleg nálgun við öll vandamál heimsins. Undir áhrifum frá Fuller hefur Ykon hópurinn þróað Ykon leikinn, sem er mun ljóðrænni en nálgun Fullers.
 
Í staðinn fyrir að leysa vandamál sem við þekkjum vill Ykon hópurinn reyna að grafa upp hugmyndir sem eru okkur ennþá ókunnar –stundum dásamlegar, stundum hræðilegar en eiga það sameiginlegt að geta breytt heiminum og upplifun okkar á honum um ókomna tíð. Leikurinn er áskorun á leikmenn um að skoða eigin tilvist og íhuga um leið hvernig heim þeir raunverulega vilja.

Komdu og breyttu heiminum. Þú þarft ekki að vera sérfræðingur.
Allir eru velkomnir - Aðgangur er ókeypis.

Prenta Til baka




 

 

Hafnarhús

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00
fimmtudaga 10:00 - 20:00
 

Kjarvalsstaðir

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00

 

Ásmundarsafn

Heimsókn í safnið
Opið : 13:00-17:00