Fréttir / tilkynningar
Elektra Ensemble og Franskir töfrar. Miðvikudag 30. desember kl. 20
ELEKTRA ENSEMBLE
Tónlistarhópurinn Elektra Ensemble, skipaður fimm, ungum og framúrskarandi tónlistarkonum, var fyrr á árinu valinn Tónlistarhópur Reykjavíkurborgar 2009. Í kjölfarið gekk hópurinn til samstarfs við Listasafn Reykjavíkur um tónleikaröð á Kjarvalsstöðum og eru desembertónleikarnir þeir fjórðu og síðustu í röðinni. Mikil ánægja hefur ríkt um samstarfið og hafa Listasafnið og Elektra Ensemble því ákveðið að framlengja það með skipulagðri tónleikaröð á næsta ári. Fyrstu tónleikar hópsins á nýju ári verða um miðjan febrúar og verður efnisskrá þeirra og þema nýrrar tónleikaraðar kynnt frekar þegar þar að kemur.
Meðlimir Elektra Ensemble eru Ástríður Alda Sigurðardóttir píanóleikari, Emilía Rós Sigfúsdóttir flautuleikari, Helga Björg Arnardóttir klarínettuleikari, Helga Þóra Björgvinsdóttir fiðluleikari og Margrét Árnadóttir sellóleikari.
Allar hafa þær leikið einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands og komið víða fram á tónleikum hérlendis og erlendis. Þær eiga það einnig sameiginlegt að hafa lokapróf úr Tónlistarskólanum í Reykjavík og í kjölfarið stundað framhaldsnám í virtum tónlistarháskólum í Englandi, Hollandi, Þýskalandi og Bandaríkjunum.
Miðasala er við innganginn. Miðaverð á tónleikana er kr. 1.500,- og kr. 1.000 fyrir, börn, nemendur, eldri borgara og öryrkja.
Prenta Til baka