Fréttir / tilkynningar

Listasafn Islands

Vikan Framundan – Kvikmynd, Steinunn og Högna. Fimmtudag 7. – Þriðjudags 12. Janúar

An upcoming exhibition

O‘ER LAND
FIMMTUDAG 7. JANÚAR KL. 20
Myndin O‘er Land frá árinu 2008 er hugleiðing um þá auknu ógn sem samfélög þjóðanna búa við m.a. vegna neyslu, vopna og stjórnmálaskoðana. Sérstakur gaumur er gefinn að hugtakinu frelsi og heimsvaldastefnu Bandaríkjamanna. Myndin er 16 mm filma og er 51:40 mínútur að lengd. Hún var frumsýnd á Sundance kvikmyndahátíðinni árið 2009 og síðar sama ár á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Rotterdam. Myndin hefur unnið til fjölda verðlauna um heim allan.  Myndataka, klipping og hljóðhönnun er í höndum Deborah Stratman, tónlist eftir Maryane Amacher, Kevin Drumm, Steve Rowell og Lustmord og hljóðblöndun sá Jacob Ross um.

Myndin er sýnd í samstarfi Kínó klúbbsins og Listasafns Reykjavíkur. Kínó klúbburinn er ör-kvikmyndaklúbbur tileinkaður sýningum á listrænum kvikmyndum, tilraunum með frásagnarformið, nýbreytni í heimildarmyndum, og framúrstefnulegri kvikmyndagerð.

Sjá meira


STEINUNN Í HNOTSKURN
SUNNUDAG 10. JANÚAR KL. 15

Steinunn Sigurðardóttir hefur tekið saman einstaka kynningu í máli og myndum um þá þætti í náttúru  okkar og þjóðlegri hefð sem hafa haft áhrif á hönnun hennar. Í fyrirlestri sínum á Kjarvalsstöðum sunnudaginn 10. janúar kl. 15 fjallar Steinunn um feril sinn og hönnunarferlið og varpar ljósi á mikilvægi umhverfis okkar í sköpunarferlinu.

nánar um sýningunna

HÚSIN HENNAR HÖGNU
ÞRIÐJUDAG 12. JANÚAR KL. 20

Þriðjudagskvöldið 12. janúar kl. 20 mun Pétur H. Ármannsson arkitekt flytja fyrirlestur á Kjarvalsstöðum um verk Högnu Sigurðardóttur arkitekts í tengslum við sýninguna Efni og andi í byggingarlist.

nánar um sýningunna




Prentað af vef Listasafns Reykjavíkur, www.listasafnreykjavikur.is þann 09.31.2012