Fréttir / tilkynningar

Listasafn Islands

Íslensk Hönnun - Alþjóðleg söluvara. Fimmtudag 14. janúar kl. 20

An upcoming exhibition

Fyrsti fyrirlestur Hönnunarmiðstöðvar Íslands og Listasafns Reykjavíkur á þessu ári verður haldinn í Hafnarhúsinu fimmtudaginn 14. janúar kl. 20. Þar mun Rúnar Ómarsson framkvæmdastjóri og einn af stofnendum fatahönnunarfyrirtækisins Nikita segja sögu fyrirtækisins, sem stofnað var í ársbyrjun 2000. Rúnar hefur því 10 ára reynslu í markaðssetningu á íslenskri hönnun á alþjóðavettvangi, en jafnframt ákveðnar skoðanir á markaðssókn íslenskra fyrirtækja á erlendri grundu. Nikita er með starfsfólk og starfsemi í fjórum löndum, en vörur Nikita eru nú fáanlegar í um 1.500 verslunum í 30 löndum. Vefsíða fyrirtækisins er www.nikitaclothing.com

Prentað af vef Listasafns Reykjavíkur, www.listasafnreykjavikur.is þann 09.36.2012