Fréttir / tilkynningar
Ljóslitlífun, Erró - Geimfarar og D15 Dodda Maggý. Föstudag 15. janúar kl. 21
An upcoming exhibitionÁ sýningunni Ljóslitlífun kemur fram hópur ungra, íslenskra listamanna sem hefur tileinkað sér ákveðin vinnubrögð í málaralist á síðustu árum. Ekki er um einn sameiginlegan stíl eða stefnu að ræða heldur á hópurinn það sammerkt að alast upp við sjónmenningu, sem mótuð er af myndasögum, teiknimyndum, tölvugrafík og götulist. Verkin einkennast öðru fremur af litagleði og sjálfsprottnum formum, litir eru ótónaðir og formin vel afmörkuð líkt og í teiknimyndum. Sum þeirra eru grófgerð og tilfinningaþrungin á meðan önnur eru hófstillt og öguð. Verkin eru ýmist máluð með iðnaðarmálningu á grófgerðar viðarplötur, með bleki á fíngerðan pappír eða beint á veggi utan eða innan sýningarsalanna.
Listamennirnir á sýningunni eru Davíð Örn Halldórsson, Gabríela Friðriksdóttir, Guðmundur Thoroddsen, Heimir Björgúlfsson, Helgi Þórsson, Jón Henrysson, Ragnar Jónasson, Sara Riel, Sigga Björg Sigurðardóttir, Sigtryggur Berg Sigmarsson og Þórdís Aðalsteinsdóttir. Sýningarstjóri er Hafþór Yngvason.
Fjölbreyttir viðburðir verða á sýningartímabilinu, en næstkomandi sunnudag, 17. janúar kl. 15, bjóða listamennirnir Guðmundur Thoroddsen, Heimir Björgúlfsson og Ragnar Jónasson gestum í listamannaspjall í Hafnarhúsinu.
Ókeypis aðgangur. Allir velkomnir með húsrúm leyfir.
*Titillinn Ljóslitlífun er nýyrði sem varð til með því að snúa við öðru atkvæðinu í ljóstillífun svo að úr verður „lit“, eða orðið „litur“ í þolfalli. Það vísar til umbreytingar sem verður fyrir tilstilli ljóss, sem má taka sem margræða líkingu fyrir málun. Sjá nánar, Erró - Geimfarar Sjá nánar, D15 Dodda Maggý
Prentað af vef Listasafns Reykjavíkur, www.listasafnreykjavikur.is þann 17.41.2012
|