Fréttir / tilkynningar

Listasafn Islands

Sláandi myndir: Ögrandi list og óvænt viðbrögð. Hafnarhús, Fimmtudag 21. Janúar kl. 20

An upcoming exhibition

Andres Serrano. Heaven and hell, 1984

Dr. Steven C. Dubin frá Columbia háskóla, flytur fyrirlesturinn Arresting Images: Impolitic Art and Unexpected Reactions. Söfn gegna mikilvægu hlutverki í þeim átökum sem átt hafa sér stað í Bandaríkjunum og annars staðar í heiminum gagnvart menningu og ritskoðun sem líkt hefur við stríðsástand um yfirráð menningar. Upprunalega voru söfn álitin eins konar hof eða helgistaðir en hafa þróast í þá átt að vera lýðræðislegur og spennandi vettvangur ætlaður almenningi þar sem tekist er á um ólík sjónarmið. Steven C. Dubin sem hefur sérhæft sig í rannsóknum á sviði safnafræði og lista, mun í erindi sínu fjalla um myndlistarmenn og sýningar sem hafa verið mjög umdeildar og leitt til kröftugra átaka á síðari hluta 20. aldar og í upphafi 21. aldar. Steven C. Dubin er Fulbright-gestakennari í safnafræði við Háskóla Íslands frá Columbia-háskólanum í New York og mun hann taka sjónrænan púls á söfnum, fjalla um mikilvægi þeirra og byggja á rannsóknum sínum bæði í Bandaríkjunum og í Suður-Afríku.

Fyrirlesturinn er unninn í samvinnu við Háskóla Íslands, safnafræði og fer fram á ensku.



Prentað af vef Listasafns Reykjavíkur, www.listasafnreykjavikur.is þann 17.42.2012