Fréttir / tilkynningar
Tunglfarar á Íslandi. Hafnarhús - Sunnudag 31. janúar kl. 15

Áhugi Errós á geimferðum og geimförum efldist til muna þegar hann fékk tækifæri til að heimsækja og dvelja um nokkurt skeið í einni af bækistöðvum NASA í Houston í Bandaríkjunum á áttunda áratugnum. Sú reynsla varð kveikjan að Geimfara seríu Errós, sem nú er sýnd í Hafnarhúsinu.
GEIMFERÐAÁÆTLUN BANDARÍKJANNA OG TUNGLFARAR Á ÍSLANDI
Í fyrirlestrinum sínum mun Ingólfur segja frá ferðalögum bandarískra geimfara um hálendi Íslands í júlí 1965 og 1967. Þessir geimfarar áttu síðar eftir að fara til tunglsins. Auk samtíma frásagna íslenskra dagblaða, sem nýttu sér þetta fréttaefni óspart, er byggt á frásögnum fjölmargra Íslendinga sem fóru með geimförunum um hálendið. Enn fremur var rætt við einn af tunglförunum.
Ingólfur Ásgeir Jóhannesson er sagnfræðingur og menntunarfræðingur og starfar sem prófessor við Háskólann á Akureyri.
GEIMFARASERÍAN
Erró gerði upphaflega fjölda samklippimynda, sem síðar áttu eftir að verða að málverkum, þar sem hann tefldi saman annars vegar myndum af geimförum, farartækjum tengdum geimnum og fjarlægum plánetum og hins vegar tilvísunum í þekkt verk úr listasögunni eftir listamenn á borð við Rogier Van der Weyden, Ingres og Boucher og vísindaskáldsagnateiknimyndasögur úr samtímanum.
Prenta Til baka