Fréttir / tilkynningar
Steinunn - Sýningarlok. Sunnudag 31. janúar

Þessi frumraun með sýningu á fatahönnun gefur vísbendingu um að íslensk hönnun í fremstu röð á erindi við gesti listasafna og er vel til þess fallin að laða að fleiri, nýja gesti.
Þegar sýningu Steinunnar lýkur næstkomandi sunnudag má gera ráð fyrir að hátt í 10.000 gestir hafi séð hana, sem þýðir að jafnaði, að um 150 gestir hafi skoðað hana dag hvern sem hún var opin.
Auk sýningarinnar sjálfrar nutu gestir fyrirlestra, leiðsagna, listsmiðja og annarra viðburða í tengslum við hana.
Sýningu Steinunnar lýkur sem fyrr sagði sunnudaginn 31. janúar.
Kjarvalsstaðir eru opnir daglega kl. 10 – 17 og er aðgangur ókeypis.
Senn líður að næstu sýningu í vestursal Kjarvalsstaða sem spannar 130 ára sögu vatnslitamynda á Íslandi, með á annað hundrað verka um sextíu myndlistarmanna. Sýningin verður opnuð föstudaginn 12. febrúar. Sýningarstjóri er Aðalssteinn Ingólfsson.
Prenta Til baka