Fréttir / tilkynningar
Tækniþróunarsjóður fyrir hönnun og arkitektúr. Fimmtudag 11. Febrúar kl. 20
An upcoming exhibition
Framsögumenn eru Sigurður Björnsson, sviðsstjóri á rannsókna- og nýsköpunarsviði hjá Rannís, sem segir frá Tækniþróunarsjóði og möguleikum á styrkjum vegna verkefna á sviði hönnunar og arkitektúrs. Einnig munu Róshildur Jónsdóttir vöruhönnuður segja frá verkefninu Skepnu sköpun - Fiskibeinamódel en verkefnið hlaut úthlutun úr sjóðnum árið 2009 og Aðalsteinn Snorrason arkitekt segja frá verkefninu Heilsuhótel í Stykkishólmi sem var úthlutað styrk undir merkjum sjálfbærrar ferðaþjónustu - Öndvegisstyrkir árið 2009. Aðalsteinn er verkefnisstjóri verkefnisins en helstu samstarfsaðilar eru Arkís ehf., Helgi Bjarnason, Ásthildur Sturludóttir, Anna G. Sverrisdóttir, Magnús Bæringsson, Þórunn Sigþórsdóttir og Laufey Haraldsdóttir. TÆKNIÞRÓUNARSJÓÐUR Tækniþróunarsjóður hefur starfað frá árinu 2004, en hann tók við af Tæknisjóði sem hafði starfað frá árinu 1994. Sjóðurinn heyrir undir iðnaðarráðherra, en fagleg umsýsla hans er í höndum Rannís. Hlutverk sjóðsins er að styðja þróunarstarf og rannsóknir á sviði tækniþróunar sem miða að nýsköpun í íslensku atvinnulífi, og skal hann taka mið af og fjármagna verkefni í samræmi við meginstefnu Vísinda- og tækniráðs. Framlag til sjóðsins hefur hækkað jafnt og þétt frá 2004 og stendur nú í 690 milljónum. Árið 2009 voru tveir nýir flokkar styrkja kynntir til sögunnar; frumherjastyrkir sniðnir að þörfum sprotafyrirtækja og frumkvöðla með verkefni á byrjunarstigi og brúarstyrkir fyrir fyrirtæki sem eru að komast á legg og eru að byggja upp grunnstoðir reksturs og leggja í sérstakt markaðsátak, auk hinna hefðbundnu verkefnisstyrkja. AÐGANGUR ÓKEYPIS
Prentað af vef Listasafns Reykjavíkur, www.listasafnreykjavikur.is þann 10.48.2010
|