Listasafn Reykjavíkur

Fréttir / tilkynningar

Blæbrigði vatnsins, Kjarvalsstöðum. Föstudag 12. febrúar kl. 18

Markmiðið sýningarinnar er að draga fram einkenni vatnslitalistarinnar, skoða fjölbreytileika hennar í íslensku samhengi og hvernig hún hefur breyst í rás tímans. Flestir okkar virtustu listamanna eiga verk á sýningunni en einnig margir sem eru minna þekktir. Það var lagt upp með að skoða og endurmeta framlag listamanna til sögunnar alfarið á forsendum vatnslitaverka og því hafa ýmsir komið fram á völlinn sem eru minna þekktir fyrir olíu- og akrílmálverk . Aðrir koma á óvart með myndum sem eru um margt ólíkar verkum þeirra í öðrum miðlum.
Á sýningunni hefur sýningarstjórinn Aðalsteinn Ingólfsson náð að safna saman góðu úrtaki af vatnslitalist samtímans og fjallar einnig ítarlega um það í bók sem kemur út samhliða sýningunni. Bókin er gefin út af bókaútgáfunni  Opnu í samstarfi við Listasafn Reykjavíkur.

VATN OG LITUR
Í tengslum við sýninguna Blæbrigði vatnsins býðst fjölskyldum að spreyta sig á að mála með vatnslitum beint á vegginn í norðursal Kjarvalsstaða og kynnast þannig eiginleikum vatnslitarins á fremur óvenjulegan máta, því oftar en ekki spilar pappír stórt hlutverk í gerð vatnslitamynda. Í smiðjunni í norðursal er gerð tilraun til að kanna lagskiptingu vatnslitarins yfir langan tíma og skoða hvað gerist þegar málað er með gagnsæjum lit yfir annan lit. Hér gefst fjölskyldunni kjörið tækifæri til að setja sig í spor listamannsins, takast á við spennandi miðil og öðlast innsýn í eiginleika vatnslitarins.

SAFNANÓTT
Fjölmargir viðburðir verða í boði á Kjarvalsstöðum á Safnanótt m.a. í tengslum við sýninguna Blæbrigði vatnsins. Myndlistarmaðurinn Halldór Ásgeirsson verður með vatnslitagjörning allt kvöldið þar sem hann málar beint á glugga í forsal safnsins. Verk Halldórs mun svo standa áfram sem hluti sýningarinnar og tekur breytingum eftir birtustigi og veðurfari.

SPJALL SÝNINGARSTJÓRA
Sunnudaginn 14. febrúar kl. 15 verður Aðalsteinn Ingólfsson á Kjarvalsstöðum og fer með gestum um sýninguna.

Prenta Til baka




 

 

Hafnarhús

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00
fimmtudaga 10:00 - 20:00
 

Kjarvalsstaðir

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00

 

Ásmundarsafn

Heimsókn í safnið
Opið : 13:00-17:00