Fréttir / tilkynningar

Listasafn Islands

Geimsmiðja og gjörningar - Tónlist og tangó - Vatnslitir og vökudraumar.

An upcoming exhibition

HAFNARHÚS
19:00 - 19:45 Leiðsögn með Guju Dögg Hauksdóttur um sögu og byggingarlist Hafnarhússins.
19:30 - 22:30 Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness með fjölskyldusmiðju um tunglið og geimferðir í tengslum við sýninguna Erró – Geimfarar.
20:30 - 21:00 Leiðsögn um sýninguna Erró – Mannlýsingar.
21:00 - 21:30 Gjörningur Sigtryggs Bergs Sigmarssonar eins af listamönnum sýningarinnar Ljóslitlífun.
21:30 - 22:30 Hafþór Yngvason safnstjóri og sýningarstjóri Ljóslitlífunar ræðir við gesti um sýninguna.
22:30 – 23:30 Tónleikar Stilluppsteypu en hljómsveitina skipa Helgi Þórsson og Sigtryggur Berg Sigmarsson sem báðir eiga verk á sýningunni Ljóslitlífun.


KJARVALSSTAÐIR
18:00 24:00 Opnun sýningarinnar Blæbrigði vatnsins sem spannar 130 ára sögu vatnslitamynda á Íslandi.
18:00 - 24:00 Vatn og litur er smiðja fyrir alla fjölskylduna þar sem í boði er að mála beint veggi í norðursal Kjarvalsstaða.
18:00 - 24:00 Halldór Ásgeirsson vinnur vatnslitaverk beint á glugga í vesturforsal en það mun standa áfram sem hluti sýningarinnar Blæbrigði vatnsins.
19:30 - 20:00 Leiðsögn um Kjarval- Innsýn; skjaldmeyjar og hugarfley.
20:30 – 21:15 Leiðsögn með Guju Dögg Hauksdóttur um sögu og byggingarlist Kjarvalsstaða.
21:30 - 22:00 Sönghópurinn Blikandi stjörnur undir stjórn Ingveldar Ýrar Jónsdóttur.
22:00 -24:00 Tangófélagið stendur fyrir argentínskum tangódansleik (Milonga).


ÁSMUNDARSAFN
19:00 – 19:45 Leiðsögn um sýninguna Rím.
20:00 -21:00 Fjölskylduleiðsögn í tali og tónum sem hin ástæla leikkona Guðrún Ásmundsdóttir og  hin fjölhæfa tónlistarkona Kristín Anna Valtýsdóttir (Kría Brekkan) sjá um.
21:00 & 21:30 &23:00 &23:30 Draumavéla-innsetning með tónlist eftir raftónlistarmanninn Rúnar Magnússon. Gestir hlusta á tónlistina og horfa samtímis með lokuð augun á flöktandi ljósið frá draumavélinni sem framkallar munstur og myndir eða vökudrauma. Flutningur verksins tekur 25 mín. Athugið takmarkaður fjöldi kemst að í hvert sinn.
22:00 – 22:45 Leiðsögn með Guju Dögg Hauksdóttur um sögu og byggingarlist Ásmundarsafns.



Prentað af vef Listasafns Reykjavíkur, www.listasafnreykjavikur.is þann 09.08.2012