Fréttir / tilkynningar
Hyldýpi þar sem augað týnist. Hafnarhús - Sunnudag 21. febrúar kl. 15
_DSC7124_web.jpg)
Hugleiðingar Cézanne um málverkið og staða málverksins í samtímanum er einnig uppspretta opinna umræðna í Hafnarhúsinu næstkomandi sunnudag kl. 15, þar sem rithöfundarnir Sjón og Oddný Eir Ævarsdóttir leiða dagskránna með umræðum og spurningum.
Í umræðunum taka þátt auk Hafþórs Yngvasonar safn- og sýningarstjóra, listamennirnir Davíð Örn Halldórsson, Gabríela Friðriksdóttir, Helgi Þórsson, Jón Henrysson, Sara Riel, Sigga Björg Sigurðardóttir og Sigtryggur Berg Sigmarsson.
Á sýningunni Ljóslitlífun eru sýnd verk eftir ellefu málara af yngri kynslóðinni, sem hafa helgað sig málaralistinni undanfarin ár.
Aðgangur er ókeypis og öllum opinn.
Athygli er vakin á að sýning Doddu Maggýjar í D-sal lýkur sunnudaginn 21. febrúar.
Prenta Til baka