Listasafn Reykjavíkur

Fréttir / tilkynningar

Boðskort: D16 Katrín Elvarsdóttir - Hvergiland, Hafnarhús. Fimmtudag 25. febrúar kl. 17

Í texta sem Sigrún Sigurðardóttir hefur ritað um sýningu Katrínar segir m.a.: „Katrín Elvarsdóttir hefur á undanförnum árum leitt áhorfendur inn í heim þar sem skáldskapur og veruleiki renna saman. Hún beitir ljósmyndinni til að skapa ímyndaðan heim sem sprottinn er úr veruleikanum sjálfum og dregur þannig fram framandleika umhverfis sem alla jafna er álitið hversdagslegt.

Katrín Elvarsdóttir lauk B.F.A. gráðu frá Art Institute of Boston árið 1993 og hefur síðan þá sýnt víða, bæði í Bandaríkjunum, Evrópu og á Íslandi. Með sýningunni Hvergiland býður Katrín okkur að stíga inn í veruleika sem orðin er til í beinu framhaldi af öðrum sýningum hennar, s.s. Sporlaust, Af þessum heimi og Margsögu. Líkt og með þeim sýningum býr Katrín hér til veruleika sem áhorfandinn á þátt í að gefa innihald. Við erum stödd í heimi sem sprottinn er úr raunveruleikanum sjálfum, heimi sem er hvergi til en hefur engu að síður orðið til úr áþreifanlegu efni. Við erum stödd í veruleika sem verður til þegar ímyndunaraflið mætir því sem augað nemur.“
Sýningarstjóri er Yean Fee Quay.

Sunnudaginn 7. mars kl. 15 verður Katrín Elvarsdóttir með sýningarstjóraspjall.

Prenta Til baka




 

 

Hafnarhús

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00
fimmtudaga 10:00 - 20:00
 

Kjarvalsstaðir

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00

 

Ásmundarsafn

Heimsókn í safnið
Opið : 13:00-17:00