Fréttir / tilkynningar

Listasafn Islands

Yrki Arkitektar. Hafnarhús, Fimmtudag 25. febrúar kl. 20

Yrki, sem er tiltölulega ung arkitektastofa, var stofnuð af þeim Sólveigu Ásdísi Helgu árið 1997. Stofan er ekki stór en hefur staðið fyrir gerð afar vandaðra bygginga, meðal annars Lækningaminjasafnsins við Nesstofusafn á Seltjarnarnesi, sem hlaut 1. verðlaun í samkeppni árið 1997 og er nú langt komin í byggingu. Stofan á einnig veg og vanda að Saltfiskssetri Íslands í Grindavík (2002), sambýli í Garðabæ (2002) og vigtarhúss við höfnina; byggingar sem allar hafa verið tilnefndar til menningarverðlauna DV á sviði byggingarlistar. Þá liggja eftir arkitekta Yrkis íbúðir í Mörkinni sem byggðar voru í kjölfar samkeppni um heildarskipulag og hönnun Markarholtssvæðis og lauk fyrir skömmu, auk afar óvenjulegs sumarbústaðar sem reistur var í villtu birkikjarri í uppsveitum Borgarness.

Sjá www.yrki.is



Prentað af vef Listasafns Reykjavíkur, www.listasafnreykjavikur.is þann 24.18.2013