Listasafn Reykjavíkur

Fréttir / tilkynningar

Aðsóknarmet slegið - Tvö hundruð og tuttugu þúsund gestir

Hafnarhús

Ásmundarsafn

Aðsóknarmet var slegið í Listasafni Reykjavíkur á síðasta ári þegar gestafjöldinn fór  í fyrsta sinn yfir tvö hundruð þúsund, en heildargestafjöldi ársins 2009 nam samtals tvö hundruð og tuttugu þúsundum. Aukningin nemur 20% milli áranna 2008 og 2009 en aðgangur að safninu var gefinn frjáls 1. janúar 2008.

Aðsóknin hefur aukist jafnt og þétt undanfarin ár, en ef litið er aftur til  1. janúar 2007 til ársloka 2009 nemur aukningin 65%. Aukning skipulagðra skólaheimsókna og gesta  á skipulagða fjölskylduviðburði hefur einnig vaxið gríðarlega og nam 33% milli áranna 2008 og 2009.

Listasafn Reykjavíkur hefur yfir að ráða þremur safnhúsum; Hafnarhúsi, Kjarvalsstöðum og Ásmundarsafni og lagði stærstur hluti gestanna á síðasta ári leið sína í Hafnarhúsið, eða 63%.

Á árinu 2009 voru þrjátíu og þrjár sýningar í Listasafni Reykjavíkur en auk þess 200 skipulagðir viðburðir sem tengdust sýningum safnsins á einn eða annan hátt eða voru unnir í samstarfi við félagasamtök, skóla, myndlistarmenn, tónlistarmenn og aðra aðila.

SAMEIGINLEG LÍFSGÆÐI
Starfsfólk Listasafns Reykjavíkur er að vonum stolt og þakklátt yfir þeim árangri sem náðst hefur í starfsemi safnsins. Listasafn Reykjavíkur hefur verið hornsteinn fjölbreyttra myndlistasýninga og  myndlistarumræðu undangengin misseri og hefur þannig komið til móts við aukinn áhuga fólks á menningu og listum. Gjaldfrjáls aðgangur hefur örvað safnastarfið til muna en einnig vegur stóraukið framboð fjölbreyttra viðburða þungt á vogarskálum aðsóknarinnar.

FJÖLSKYLDAN Í FYRIRRÚMI
Listasafn Reykjavíkur leggur metnað í að hafa sýningar aðgengilegar fyrir breiðan hóp fólks og miðla þeim til gesta á fjölbreyttan máta. Rík áhersla hefur verið lögð í gott aðgengi og fræðslu fyrir skólahópa og fjölskyldufólk og á síðasta ári var norðursalur Kjarvalsstaða tekinn sérstaklega í notkun til að mæta þörfum þessara gesta.

Skólahópar frá leikskólastigi til háskólastigs hafa vanið komur sínar í skipulagðar heimsóknir í safnið og notið leiðsagnar lista- og fræðimanna um það sem fyrir augu og eyru ber. Stefna Listasafns Reykjavíkur er að örva enn frekar áhuga skólafólks á safnastarfinu með áherslu á  framhaldsskólanema og fjölskylduheimsóknir og eru nú þegar rýnihópar að störfum í safninu til að stýra þessu verkefni. 

Listasafn Reykjavíkur er opið alla daga vikunnar og Hafnarhúsið er opið til klukkan tíu öll fimmtudagskvöld.  Listasafn Reykjavíkur fagnar því að almenningur sæki í auknum mæli andlega upplyftingu í sýningar og viðburði safnsins, enda er sterkt menningarumhverfi  grundvöllur góðs samfélags.

Prenta Til baka




 

 

Hafnarhús

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00
fimmtudaga 10:00 - 22:00
 

Kjarvalsstaðir

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00

 

Ásmundarsafn

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00-16:00