Fréttir / tilkynningar
HönnunarMars 2010. Fimmtudag 11. mars kl. 20

Dagana 18. – 21. mars stendur Hönnunarmiðstöðin öðru sinni fyrir HönnunarMars sem er fjögurra daga hátíð íslenskrar hönnunar og arkitektúrs.
Af þessu tilefni verður Hönnunarmiðstöð með kynningu í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi fimmtudagskvöldið 11. mars kl. 20 þar sem farið verður yfir það helsta sem í boði er á HönnunarMars. Hafnarhúsið verður helsti vettvangur hátíðarinnar en þar verða í boði fyrirlestrar, móttökur, sýningar og fleira.
Viðburðir HönnunarMars 2010 eru um 100, skemmtilegar uppákomur, sýningar, innsetningar, skoðunarferðir, kynningar og fyrirlestrar sem endurspegla fjölbreytileika íslenskrar hönnunar og arkitektúrs.
Áhersla er lögð á þátttöku hönnunarverslana en einnig hafa veitingastaðir og kaffihús verið virkjuð og sýningar settar upp víðs vegar um borgina.
HönnunarMars er ætlað að vekja athygli á umfangi og gæðum íslenskrar hönnunar hjá almenningi, fjölmiðlum og stjórnvöldum. Íslenskir hönnuðir hafa verið að sækja mjög í sig veðrið undanfarin ár sem sést í þeirri miklu grósku sem er í íslenskri hönnun í dag.
Nú þegar hefur fjöldi erlendra blaðamanna boðað komu sína á HönnunarMars 2010. Erlendir fyrirlesarar, sem ættu að verða hönnunarsamfélaginu og öðrum innblástur, munu taka til máls í fyrirlestraröð Hönnunarmiðstöðvar auk þess sem Norrænir kaupendur og framleiðendur hönnunar taka þátt í kaupstefnu sem Hönnunarmiðstöð stendur fyrir í samstarfi við Norræna húsið.
HönnunarMars boðar komu sumars glaðlegur, bjartur og varpar ljósi á ný tækifæri.
Prenta Til baka