Fréttir / tilkynningar
Málþing um Blæbrigði vatnsins. Sunnudag 14. mars kl. 15
An upcoming exhibition
Aðalsteinn Ingólfsson sýningarstjóri fjallar um abstraktmyndir Skarphéðins Haraldssonar frá öndverðum sjötta áratugnum, bæði vatnslitamyndir og gvassmyndir, en þær eru nánast óþekktar. Aðalsteinn fjallar og skoðar myndirnar í tengslum við myndir „þekktari“ listamanna frá sama tíma. Í erindi sínu mun myndlistarmaðurinn JBK Ransu leggja út frá staðhæfingunni að ekki séu allar myndir listaverk. Listgildi mynda er metið út frá listheimskerfi síns tíma. Eitt sinn var það handverkið sem ákvarðaði listgildið, síðan kom fagurfræðilegur mælikvarði til sögunnar, í dag er það hugmyndagildi og á það jafnt við um vatnslitamyndir eins og hvert annað myndlistaverk. Í umfjöllun sinni mun Ransu beina sjónum að því hvernig þessi þróun birtist í vatnslitamyndum samtímalistamanna. Þriðja erindið flytur Harpa Björnsdóttir myndlistarmaður og ber það yfirskriftina Skilgreiningin drepur fegurðina. Þar gengur Harpa út frá þeirri fullyrðingu að skilgreiningin drepi fegurðina og eyði upplifuninni. Viðfangsefnið nálgast hún með því að gera tilraun til að skilgreina, hjakka í hugtökum, drepa á dreif, fara út um víðan völl og velta upp spurningum um hið jákvæða og neikvæða við fegurðina í blæbrigðum vatnslitarins. Kjarvalsstaðir eru opnir daglega 10 – 17. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.
Prentað af vef Listasafns Reykjavíkur, www.listasafnreykjavikur.is þann 09.41.2012
|