Fréttir / tilkynningar
Vorjafndægur í Viðey - Laugardag 20. mars kl. 14.30
An upcoming exhibition
FRIÐARSÚLAN Þann 9. október 2007 var friðarljósið í listaverkinu Imagine Peace Tower eða Friðarsúlunni tendrað. Verkið er tileinkað minningu John Lennons sem hefði þá orðið 67 ára gamall. Á hverju ári lýsir Friðarsúlan frá fæðingardegi Lennons til 8. Desember sem er dánardagur hans. Einnig er kveikt á ljósinu á gamlársdag, á jafndægri að vori þegar ljósið mun loga í viku og á sérstökum hátíðardögum sem listamaðurinn og Reykjavíkurborg koma sér saman um. Friðarsúlan er hvít að lit og myndar nokkurs konar óskabrunn, en á hann er rituð setningin Hugsið ykkur frið á 24 tungumálum.
ÁFANGAR Í tengslum við Listahátíð 1990 var listaverkið Áfangar eftir bandaríska myndhöggvarann Richard Serra (f. 1939) reist á vesturhluta Viðeyjar. Verkið samanstendur af níu súlnapörum úr stuðlabergi sem ramma inn nærliggjandi kennileiti eða áfangastaði. Serra er einn áhrifamesti myndhöggvari samtímans og er verkið gjöf hans til íslensku þjóðarinnar. Súlnapörin eru þannig uppsett að önnur súlan er í níu metra hæð yfir sjó en hin er metra hærri eða tíu metrum yfir sjávarmáli. Súlurnar eru þó jafnar að ofan því sú sem lægra stendur er fjórir metrar á hæð en hin hærri þrír metrar. Bilið á milli súlnanna ræðst svo af halla landsins sem þær standa á. Viðeyjarferjan fer frá Skarfabakka, Sundahöfn kl. 13:15, 14:15 og 15:15 og frá Viðey til Sundahafnar kl. 13:30, 14:30, 15:30, 16:30 og 17:30.
Ferjutollur Börn 0 - 6 ára ókeypis Börn 6 - 18 ára (í fylgd með fullorðnum) kr. 500.- Fullorðnir 18 - 67 ára kr. 1.000.- Eldri borgarar, námsmenn og öryrkjar kr. 800.- Viðeyjarstofa er opin og býður upp á úrval veitinga.
Prentað af vef Listasafns Reykjavíkur, www.listasafnreykjavikur.is þann 17.54.2012
|