Fréttir / tilkynningar

Listasafn Islands

Davíð Örn, Helgi Þórsson og Sara Riel í Listamannaspjalli. Sunnudag 21. mars kl. 15

An upcoming exhibition

Sara Riel. Eldflugur  I  Fireflies, 2010

Þrír af listamönnunum ellefu sem eiga verk á sýningunni Ljóslitlífun í Hafnarhúsi bjóða gestum að ganga með sér um sýninguna og ræða það sem fyrir augu ber næstkomandi sunnudag. Listamennirnir eru Davíð Örn Halldórsson, Helgi Þórsson og Sara Riel. Með þeim í för verður listfræðingurinn Kristín Dagmar Jóhannesdóttir.

Aðgangur ókeypis og allir velkomnir.

LJÓSLITLÍFUN
Á sýningunni kemur fram hópur ungra, íslenskra listamanna sem hefur tileinkað sér ákveðin vinnubrögð í málaralist á síðustu árum. Ekki er um einn sameiginlegan stíl eða stefnu að ræða heldur á hópurinn það sammerkt að alast upp við sjónmenningu, sem mótuð er af myndasögum, teiknimyndum, tölvugrafík og götulist. Verkin einkennast öðru fremur af litagleði og sjálfsprottnum formum, litir eru ótónaðir og formin vel afmörkuð líkt og í teiknimyndum. Sum þeirra eru grófgerð og tilfinningaþrungin á meðan önnur eru hófstillt og öguð. Verkin eru ýmist máluð með iðnaðarmálningu á grófgerðar viðarplötur, með bleki á fíngerðan pappír eða beint á veggi utan eða innan sýningarsalanna. Listamennirnir á sýningunni eru Davíð Örn Halldórsson, Gabríela Friðriksdóttir, Guðmundur Thoroddsen, Heimir Björgúlfsson, Helgi Þórsson, Jón Henrysson, Ragnar Jónasson, Sara Riel, Sigga Björg Sigurðardóttir, Sigtryggur Berg Sigmarsson og Þórdís Aðalsteinsdóttir.
Sýningarstjóri er Hafþór Yngvason.

Prentað af vef Listasafns Reykjavíkur, www.listasafnreykjavikur.is þann 17.57.2012