Listasafn Reykjavíkur

Fréttir / tilkynningar

Listasafn Reykjavíkur hlýtur hönnunarverðlaun FÍT

Tilraunamaraþon

Sýningarskráin Experiment Marathon / Tilraunamaraþon hlaut fyrstu hönnunarverðlaun á árlegri verðlaunaafhendingu Félags íslenskra teiknara þann 17. mars 2010. Bókin Experiment Marathon er gefin út af Listasafni Reykjavíkur í samvinnu við Serpentine Gallery í Lundúnum. Hönnuður verksins er Gunnar Vilhjálmsson, sem hefur um árabil séð um hönnun og útlit kynningar- og auglýsingaefnis, auk sérhæfðrar útgáfu hjá Listasafni Reykjavíkur.

Bókin Experiment Marathon var gefin út í tilefni af samnefndu sýningaverkefni sem Hans Ulrich Obrist og Ólafur Elíasson stýrðu í Hafnarhúsinu vorið 2008. Verkefnið samanstóð af tveggja daga tilraunum og sýningu sem stóð yfir allt sumarið þar sem stór hópur af þekktum alþjóðlegum samtímalistamönnum komu fram. Verkefnið var einnig þungamiðja Listahátíðar árið 2008.

Bókin Experiment Marathon er í alþjóðlegri dreifingu í samvinnu við Koenig Books og DAP í New York og er senn á þrotum vegna mikillar eftirspurnar.

Verðlaunin eru mikil lyftistöng fyrir Listasafn Reykjavíkur, sem hefur lagt ríka áherslu á vandaðar sýningarskrár í tengslum við sýningar sínar. Fleiri útgáfur, sem safnið hefur staðið að, hafa unnið til margvíslegra viðurkenninga og verðlauna, en margar hverjar eru þegar uppseldar eða til í fáum eintökum, t.a.m. bókin um Eggert Pétursson og sýningarskráin um sýninguna Skáklist sem gríðarleg eftirspurn er eftir um allan heim.

Prenta Til baka




 

 

Hafnarhús

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00
fimmtudaga 10:00 - 20:00
 

Kjarvalsstaðir

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00

 

Ásmundarsafn

Heimsókn í safnið
Opið : 13:00-17:00