Fréttir / tilkynningar
Opnunartími Listasafns Reykjavíkur um páskana
HAFNARHÚS:
Fimmtudag. 1. apríl opið 10 – 22
Fösturdag 2. apríl Lokað
Laugardag 3. apríl opið 10 – 17
Sunnudag 4. apríl Lokað
Mánudag 5. apríl opið 10 – 17
Kjarvalsstaðir:
Fimmtudag. 1. apríl opið 10 – 17
Fösturdag 2. apríl Lokað
Laugardag 3. apríl opið 10 – 17
Sunnudag 4. apríl Lokað
Mánudag 5. apríl opið 10 – 17
Ásmundarsafn:
Fimmtudag. 1. apríl Lokað
Fösturdag 2. apríl Lokað
Laugardag 3. apríl opið 13 – 16
Sunnudag 4. apríl Lokað
Mánudag 5. apríl opið 13 – 16
Sýningar í Hafnarhúsinu:
28. maí 2009 – 29. ágúst 2010
Erró – Mannlýsingar
Á sýningunni er lögð áhersla á frásagnar portrett eða mannlýsingar sem Erró hefur þróað í gegnum tíðina. Verkin eru af ýmsum heimsþekktum einstaklingum á sviði stjórnmála, vísinda, bókmennta og lista og endurspegla ímyndir og hugmyndir þeirra.
18. mars - 23. maí
Erró – Konur frá Norður Afríku
Í myndaseríunni Konur frá Norður Afríku eru ungar, alsírskar konur í aðalhlutverki. Myndefnið sækir Erró í gömul póstkort en talið er að fyrirsæturnar séu vændiskonur sem hafi látið til leiðast að sitja fyrir á myndum hjá hermönnum þrátt fyrir að það bryti í bága við menningu þeirra og hefðir. Í verkunum má lesa fortíðarþrá og ádeilu á þrælahald.
14. janúar - 11. apríl
Ljóslitlífun
Litagleði og sjálfsprottin form einkenna málverk hinna ungu, íslensku myndlistarmanna sem eiga verk á sýningunni. Verkin eru eftir Gabríelu Friðriksdóttur, Jón Henrysson, Siggu Björg, Sara Riel, Ragnar Jónasson, Guðmund Thoroddsen, Davíð Örn, Helga Þórsson, Heimi Björgúlfsson, Sigtrygg Berg og Þórdísi Aðalsteinsdóttur.
25. febrúar - 11. apríl
D16 – Katrín Elvarsdóttir
Katrín Elvarsdóttir (1964) beitir myndavélinni til að miðla listrænum sjónarmiðum sínum. Fyrir innsetningu sína í D-salnum hefur Katrín valið myndir af húsvögnum, runnum, trjám, byggingum og stígum en yfirskriftin er Hvergiland.
Sýningar á Kjarvalsstöðum:
30. janúar – 25. apríl
Kjarval – Innsýn Skjaldmeyjar og hugarfley
Teikningar og skissur í Kjarvalssafni Listasafns Reykjavíkur nema þúsundum. Listasafn Reykjavíkur undanfarin misseri fært þær í rafrænt form með það fyrir augum að gera rannsóknarvinnu á verkum hans auðveldari og til að skoða nánar ákveðin viðfangsefni í verkum hans.
13. febrúar - 25. apríl
Blæbrigði vatnsins
Á sjötta tug myndlistarmanna eiga hátt á annað hundruð vatnlistamynda á sýningunni Blæbrigði vatnsins. Sýningin er fyrsta sinnar tegundar en hún spannar um 130 ára sögu vatnslitaverka á Íslandi, allt frá 1880 – 2009. Á sýningunni er leitast er við að gera framlagi margra af okkar þekktustu málurum góð skil en einnig að kynna minna þekkta listamenn sem hafa fundið hæfileikum sínum farveg í vatnslitaverkum.
Sýning í Ásmundarsafni:
2. maí 2009 – 30. apríl 2010
RÍM – Verk Ásmundar Sveinssonar og listamanna samtímans
Ásmundur Sveinsson myndhöggvari sótt mörg viðfangsefni sín í arfleifðina og þann tíðaranda sem skóp hann, en önnur í framtíðina, tæknina og vísindin. Á sýningunni er horft til listamanna sem glíma við sömu hluti og Ásmundur en í nútímanum og í samhengi við sinn tíma og tíðaranda. Framsetning, hugsun og úrvinnsla er gjarnan með öðrum hætti þó að glíman sé sú sama á nýrri öld.
Prenta Til baka