Listasafn Reykjavíkur

Fréttir / tilkynningar

Ævintýradagskrá í tali og tónum. Sunnudag 28. mars kl. 14

Fjölskyldufólk er sérstaklega boðið velkomið í ævintýraheimsókn í Ásmundarsafn næstkomandi sunnudag þar sem hin ástæla leikkona Guðrún Ásmundsdóttir ásamt tveimur ungum listakonum, þeim Ragnheiði Hörpu Leifsdóttur nemanda í Listaháskóla Íslands og Andreu Marke söngkonu segja frá sýningunni Rím í tali og tónum.

Þær stöllur staldra við ákveðin verk á sýningunni, segja af þeim sögur og taka lagið. Verkin á sýningunni eru eftir myndhöggvarann Ásmund Sveinsson og ellefu samtímalistamenn en þar er lögð áhersla á að sýna skyldleika í verkum samtímalistamanna við verk Ásmundar.

Ásmundur hélt alla tíð tryggð við þá hugmynd að listin ætti erindi til fólksins og ætti heima á meðal þess. Hann var kallaður alþýðuskáldið í myndlist og án efa á sú hugsjón rætur að rekja til lífsafstöðu hans, ekki síður en höggmyndahefðarinnar.

Listamenn á sýningunni eru auk Ásmundar Birgir Snæbjörn Birgisson, Davíð Örn Halldórsson, Eirún Sigurðardóttir, Finnur Arnar Arnarson, Guðrún Vera Hjartardóttir, Hrafnkell Sigurðsson, Kristín Gunnlaugsdóttir, Ólöf Nordal, Pétur Örn Friðriksson, Sara Riel og Steingrímur Eyfjörð. Sýningarstjórar eru Ólöf K. Sigurðardóttir og Sigríður Melrós Ólafsdóttir.

Áður en ævintýraleiðsögn Guðrúnar, Ragnheiðar og Andreu hefst mun Kristín Björg Jóhannesdóttir listfræðingur kynna sýninguna Rím í stuttu máli.

Aðgangur er ókeypis.

Ásmundarsafn er opið laugardaga og sunnudaga frá kl. 13-16.

Prenta Til baka




 

 

Hafnarhús

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00
fimmtudaga 10:00 - 20:00
 

Kjarvalsstaðir

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00

 

Ásmundarsafn

Heimsókn í safnið
Opið : 13:00-17:00