Fréttir / tilkynningar
Hönnunarsamkeppni í anda Ásmundar Sveinssonar. Skilafresti lýkur fimmtudaginn 8. apríl kl. 17
Samstarfsverkefni Kraums, Listasafns Reykjavíkur og Hönnunarmiðstöðvar Íslands
Verslunin Kraum, Listasafn Reykjavíkur og Hönnunarmiðstöð Íslands standa í annað sinn fyrir hönnunarsamkeppni þar sem sjónum er beint að ákveðnum listamanni. Á síðasta ári voru verk Errós lögð til grundvallar í samkeppninni en að þessu sinni er óskað eftir tillögum að nytjahlut sem endurspeglar hugarheim og verk myndhöggvarans Ásmundar Sveinssonar.
Verðlaunahafi hlýtur verðlaun að verðmæti 500.000 kr. sem Kraum, Listasafn Reykjavíkur, Samtök atvinnulífsins og Samtök iðnaðarins leggja til, auk þess sem hluturinn verður seldur í verslunum Kraums í Aðalstræti og á Kjarvalsstöðum og í safnverslunum Listasafns Reykjavíkur í Hafnarhúsi og Ásmundarsafni. Einnig má gera ráð fyrir því að fleiri munir í samkeppninni verða valdir til sölu á næstu mánuðum.
ÁSMUNDUR SVEINSSON
Ásmundur Sveinsson var fæddur árið 1893 og lést árið 1982. Ásmundur hélt alla tíð tryggð við þá hugmynd að listin ætti erindi til fólksins og ætti heima á meðal þess. Hann var kallaður alþýðuskáldið í myndlist og án efa á þessi hugsjón rætur að rekja til lífsafstöðu hans, ekki síður en höggmyndahefðarinnar. Flest verk hans voru hugsuð sem hluti af opinberu rými, órofa hluti af umhverfi sínu eða útfærð sem hönnun og nytjahlutir.
Ásmundur Sveinsson myndhöggvari ánafnaði Reykjavíkurborg verk sín ásamt heimili sínu eftir sinn dag. Höggmyndir Ásmundar, sem skráðar eru hjá Listasafni Reykjavíkur eru 415 talsins. Ásmundarsafn í Sigtúni var opnað formlega vorið 1983. Í safninu eru haldnar sýningar á verkum listamannsins, sem og verkum annarra. Í garðinum við safnið er einnig að finna mörg verka Ásmundar sem hafa verið stækkuð eða unnin sérstaklega til að standa utandyra.
Á heimasíðu Listasafns Reykjavíkur hafa þátttakendur aðgang að upplýsingum um Ásmund ásamt myndum af vel flestum verka hans. Einnig eru bækur um listamanninn í bókasafni Hafnarhússins og í Ásmundarsafni.
Yfir vetrartímann er Ásmundarsafn opið laugardaga og sunnudaga 13-16, en lokað alla virka daga.
Keppnin er opin öllum og rennur skilafrestur út fimmtudaginn 8. apríl kl. 17. Úrslit keppninnar verða kynnt við opnun sumarsýningar Ásmundarsafns 1. maí 2010.
Dómnefnd skipa:
Halla Bogadóttir - Kraum, formaður
Soffía Karlsdóttir - Listasafn Reykjavíkur
Halla Helgadóttir – Hönnunarmiðstöð Íslands
Pétur H. Ármannsson – Arkitekt
Óðinn Bolli Björgvinsson – Vöruhönnuður
Ingirafn Steinarsson – SÍM
Nánari upplýsingar veita:
Halla Bogadóttir, Kraum s: 661-7797, Soffía Karlsdóttir, Listasafni Reykjavíkur s: 820-1202 eða Halla Helgadóttir, Hönnunarmiðstöð Íslands s: 699-3600.
Samkeppnisreglur
Verk Ásmundar Sveinssonar 1
Verk Ásmundar Sveinssonar 2
Verk Ásmundar Sveinssonar 3
Verk Ásmundar Sveinssonar 4
Verk Ásmundar Sveinssonar 5
Prenta Til baka