Fréttir / tilkynningar
Skyggni frábært. Fimmtudag 8. apríl kl. 20

Hönnunarmiðstöð Íslands og Listasafn Reykjavíkur standa sameiginlega fyrir fyrirlestri í Hafnarhúsinu næstkomandi fimmtudagskvöld, 8. apríl, þar sem fimm ungir arkitektar fjalla um nýja möguleika í arkitektúr með áherslu á gæði fremur en magn.
Arkitektarnir eru Ástríður Magnúsdóttir, Bjarki Gunnar Halldórsson, Helgi Steinar Helgason, Hildur Gunnlaugsdóttir og Hildur Steinþórsdóttir.
Með ferskleika, bjartsýni og sköpunargleði að leiðarljósi leitar hópurinn á ný mið en þau eiga það sameiginlegt að hafa lokið námi í miðri kreppunni.
Ástríður, Helgi og Bjarki stunduðu nám við Arkitektaskólann í Árósum en Hildur G. og Hildur S. við Konunglegu listakademíuna í Kaupmannahöfn.
Aðgangur er ókeypis og öllum opinn.
Prenta Til baka