Listasafn Reykjavíkur

Fréttir / tilkynningar

Listamenn fjalla um Ljóslitlífun á lokadegi sýningarinnar. Sunnudag 11. apríl kl. 15

Tveir af listamönnunum ellefu sem eiga verk á sýningunni Ljóslitlífun í Hafnarhúsi bjóða gestum að ganga með sér um sýninguna og ræða það sem fyrir augu ber.
Listamennirnir eru Jón Henrysson og Sigtryggur Berg Sigmarsson. Með þeim í för verður Sirra Sigurðardóttir listamaður og verkefnastjóri viðburða hjá Listasafni Reykjavíkur.

Aðgangur ókeypis og allir velkomnir.

Sýningu Katrínar Elvarsdóttur, Hvergiland í D-salnum lýkur einnig um helgina, en D-salar verkefnið hlaut nýlega Menningarverðlaun DV.

LJÓSLITLÍFUN
Á sýningunni kemur fram hópur ungra, íslenskra listamanna sem hefur tileinkað sér ákveðin vinnubrögð í málaralist á síðustu árum. Ekki er um einn sameiginlegan stíl eða stefnu að ræða heldur á hópurinn það sammerkt að alast upp við sjónmenningu, sem mótuð er af myndasögum, teiknimyndum, tölvugrafík og götulist. Verkin einkennast öðru fremur af litagleði og sjálfsprottnum formum, litir eru ótónaðir og formin vel afmörkuð líkt og í teiknimyndum. Sum þeirra eru grófgerð og tilfinningaþrungin á meðan önnur eru hófstillt og öguð. Verkin eru ýmist máluð með iðnaðarmálningu á grófgerðar viðarplötur, með bleki á fíngerðan pappír eða beint á veggi utan eða innan sýningarsalanna.
Listamennirnir á sýningunni eru Davíð Örn Halldórsson, Gabríela Friðriksdóttir, Guðmundur Thoroddsen, Heimir Björgúlfsson, Helgi Þórsson, Jón Henrysson, Ragnar Jónasson, Sara Riel, Sigga Björg Sigurðardóttir, Sigtryggur Berg Sigmarsson og Þórdís Aðalsteinsdóttir.
Sýningarstjóri er Hafþór Yngvason.

Prenta Til baka




 

 

Hafnarhús

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00
fimmtudaga 10:00 - 20:00
 

Kjarvalsstaðir

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00

 

Ásmundarsafn

Heimsókn í safnið
Opið : 13:00-17:00