Fréttir / tilkynningar
Sýningarstjórnun - List eða Fræði? Hafnarhús, miðvikudag 14. apríl kl. 17 - 19
Málþing Listfræðafélags Íslands í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi við Tryggvagötu, miðvikudaginn 14. apríl kl. 17.00 til 19.00
Á þriðja málþingi Listfræðafélagsins verður áhersla lögð á sýningarstjórnun. Frummælendur munu varpa ljósi á ýmsar hliðar þess starfs og velta fyrir sér mörkum listar og fræða, túlkunar og miðlunar sem í því felast. Rætt verður um breytingar sem orðið hafa á hlutverki sýningarstjóra, mismunandi starfsvettvang og nálganir. Sérstaklega verður gætt að sýningarstjórn í íslensku samhengi, væntingum, þörfum og möguleikum þessa vettvangs, en líka tekist á við fræðileg viðfangsefni fagsins. Hver er ábyrgð sýningarstjóra gagnvart myndlist og listasögu? Hver er staðan þegar kemur að varðveislu og rannsóknum á íslenskri sýningasögu? Frummælendur munu hver á fætur öðrum halda stutt og skorinort erindi og í kjölfarið verður boðið upp á fyrirspurnir og samræður. Fundarstjóri verður Hanna Styrmisdóttir sýningarstjóri og þingið verður haldið í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi við Tryggvagötu, miðvikudaginn 14. apríl 2010 kl. 17.00 til 19.00.
Frummælendur verða:
Hafþór Yngvason, listfræðingur og forstöðumaður Listasafns Reykjavíkur
Birta Guðjónsdóttir, sýningarstjóri og stjórnarformaður Nýlistasafnsins
Aðalsteinn Ingólfsson listfræðingur
Ólöf K. Sigurðardóttir, listfræðingur og forstöðumaður Hafnarborgar, menningar- og listamiðstöðvar Hafnafjarðar
Markús Þór Andrésson, sjálfstætt starfandi sýningarstjóri
Málþingið er öllum opið og eru áhugamenn um myndlist hvattir til að koma.
Prenta Til baka