Fréttir / tilkynningar

Listasafn Islands

Móðir, kona, meyja - Elektra Ensemble. Kjarvalsstaðir, sunnudag 18. apríl kl. 20.

An upcoming exhibition

ELEKTRA ENSEMBLETónlistarhópurinn Elektra Ensemble og Listasafn Reykjavíkur hafa um nokkurt skeið staðið sameiginlega fyrir tónleikahaldi á Kjarvalsstöðum. Tónleikarnir næstkomandi sunnudag verða tileinkaðir tónverkum kvenna víðsvegar að undir yfirskriftinni Móðir, kona, meyja. Leikin verða verk eftir Jórunni Viðar, A. Bon di Venezia, M. Bonis, T. Musgrave, Þóru Marteinsdóttur og J. Higdon.

Meðlimir hópsins eru Ástríður Alda Sigurðardóttir píanóleikari, Emilía Rós Sigfúsdóttir flautuleikari, Helga Björg Arnardóttir klarínettuleikari, Helga Þóra Björgvinsdóttir fiðluleikari og Margrét Árnadóttir sellóleikari.


Efnisskrá
Anna Bon di Venezia (1740 – 1767?) Sónata I í C-dúr op. 1
Mel Bonis (1858 - 1937) Svíta op. 59 fyrir flautu, fiðlu og píanó
Jórunn Viðar (1918) Dans fyrir flautu, selló og píanó og Tilbrigði um íslenskt þjóðlag fyrir selló og píanó
Thea Musgrave (1928) Narcissus fyrir klarínettu og delay system
Þóra Marteinsdóttir (1978): Vestan sólar fyrir flautu og píanó og Brotabrot fyrir fiðlu, klarínettu og píanó
Jennifer Higdon (1962) Smash fyrir flautu, klarínettu, fiðlu, selló og píanó

Miðar verða seldir við innganginn. Almennt miðaverð kr. 1.500, en kr. 1.000 fyrir námsmenn, öryrkja og eldri borgara.

Elektra Ensemble hefur hlotið styrki frá Reykjavíkurborg og Tónlistarsjóði til að standa straum að tónleikahaldinu.
 

ELEKTRA ENSEMBLE
Elektra Ensemble er glæsilegur tónlistarhópur skipaður fimm ungum framúrskarandi tónlistarkonum. Hópurinn var útnefndur Tónlistarhópur Reykjavíkurborgar 2009 og í kjölfarið gekk hópurinn til samstarfs við Listasafn Reykjavíkur um tónleikaröð á Kjarvalsstöðum.

Hljóðfæraleikarar Elektra Ensemble hafa allir leikið einleik með Sinfóníuhljómsveit Íslands og komið víða fram á tónleikum hérlendis og erlendis. Þeir hafa lokið námi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík og
Listaháskóla Íslands og í kjölfarið stundað framhaldsnám í virtum tónlistarháskólum í Bandaríkjunum, Englandi, Hollandi, Frakklandi og Þýskalandi. Helstu verkefni Elektra Ensemble hafa verið tónleikaröð á Kjarvalsstöðum 2009, tónlistarflutningur á Kirkjulistahátíð og í BOZAR tónleikahöllinni í Brussel, auk tónleika í Stykkishólmskirkju og Iðnó árið 2008.

Elektra Ensemble hlaut góðar viðtökur fyrir tónleikaröð sína árið 2009 og mikið lof gagnrýnenda auk þess sem RÚV hljóðritaði leik þeirra. Gagnrýnendur hafa meðal annars sagt:

,,Sónata í D-dúr op. 94 eftir Prokofiev fyrir flautu og píanó var frábærlega leikin af Emilíu Rós Sigfúsdóttur og Ástríði Öldu, túlkunin var markviss og óheft, í senn nákvæm og kraftmikil. Pezzo Capriccioso fyrir selló og píanó eftir Tsjajkovskí var líka framúrskarandi í meðförum Margrétar og Ástríðar Öldu, hin munúðarfulla stemning sem einkennir músíkina komst fyllilega til skila. Sömu sögu er að segja um Þrjú einleiksverk fyrir klarínettu eftir Stravinskíj í dulúðugri og sannfærandi túlkun Helgu Bjargar Arnardóttur. Svíta úr Sögu dátans eftir sama tónskáld var jafnframt leikandi létt, en um leið skemmtilega demónísk. Útkoman var verulega tilkomumikil og eftirminnileg.’’ Mbl. 14. 4. 2009 J. S.

,,Leikur hópsins, ..., var enda samtaka og yfirvegaður, þótt kraftur og ástríða kæmust einnig að í hljómmiklu stórverki Brahms í lokin. Mikið mæddi í píanistanum í Beethoven og einkum í Brahms, en leikur Ástríðar var vandanum vaxinn og féll vel að vönduðum heildarsamleik.’’ Mbl. 26. 5. 2009 R. Ö. P.

,,... sindrandi einleik Ástríðar Öldu Sigurðardóttur í A Prole do Bebé... Eftir örstutt en lipurt Choros nr. 2 fyrir flautu og klarínett léku flautan og sellóið hugsanlega burðugasta verk kvöldsins, þríþætt Assobio a Játo af mikilli færni og innlifun, er skartaði jafnt litríku stílblendnu hugviti sem ótrúlegri hljómfyllingu. Elektra túlkaði verkin af snarpri einbeitni...’’ Mbl. 28. 9. 2009 R. Ö. P.



Prentað af vef Listasafns Reykjavíkur, www.listasafnreykjavikur.is þann 17.08.2012