Listasafn Reykjavíkur

Fréttir / tilkynningar

Rím - Sýningarstjóraspjall. Ásmundarsafn, sunnudag 18. apríl kl. 14

Fjölmargir, íslenskir samtímalistamenn eiga samleið með myndhöggvaranum Ásmundi Sveinssyni eins og sést glöggt á sýningunni Rím í Ásmundarsafni.

Sýningunni lýkur sunnudaginn 18. apríl en þá mun annar sýningarstjóranna, Ólöf K. Sigurðardóttir, vera með leiðsögn um sýninguna. Verkin á sýningunni eru eftir Ásmund og íslenska samtímalistamenn sem glímt hafa við sömu hluti og Ásmundur en í nútímanum og í samhengi við sinn tíma og tíðaranda. Framsetning, hugsun og úrvinnsla er gjarnan með öðrum hætti þó glíman sé sú sama á annarri öld en þeirri sem Ásmundur lifði og hrærðist á.

Listamenn á sýningunni eru auk Ásmundar Sveinssonar, Birgir Snæbjörn Birgisson, Davíð Örn Halldórsson, Eirún Sigurðardóttir, Finnur Arnar Arnarson, Guðrún Vera Hjartardóttir, Hrafnkell Sigurðsson, Kristín Gunnlaugsdóttir, Ólöf Nordal, Pétur Örn Friðriksson, Sara Riel og Steingrímur Eyfjörð. Auk Ólafar er sýningarstjórn í höndum Sigríðar Melrósar Ólafsdóttur.

Ásmundarsafn er opið laugardaga og sunnudag frá kl. 10 – 16.

Aðgangur ókeypis. Prenta Til baka




 

 

Hafnarhús

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00
fimmtudaga 10:00 - 20:00
 

Kjarvalsstaðir

Heimsókn í safnið
Opið: 10:00 - 17:00

 

Ásmundarsafn

Heimsókn í safnið
Opið : 13:00-17:00