Fréttir / tilkynningar
Barnamenning í Listasafni Reykjavíkur. Mánudag 19. - sunnudags 25. apríl.
Hafnarhús - Forvitni - hver er ég? er yfirskrift samsýningar frá átta grunnskólum í Reykjavík, Akranesi og í Reykjanesbæ. Nemendur komu í heimsókn í Hafnarhús, skoðuðu verk eftir Erró og unnu klippimyndaverk í hans anda. Úrlausnirnar eru skemmtilega fjölbreyttar t.d. eru gamlar flugvélarúður notaðar sem bakgrunnur, blaðsíður úr símaskrám og ýmislegt fundið efni notað ásamt persónulegum „dýrgripum“ úr fórum þessara upprennandi listamanna.
Athugið að það er opið til kl. 22 á sumardaginn fyrsta!
Skólarnir sem tóku þátt eru:
Ártúnsskóli Kennari: Elísabet Hjaltested
Brekkubæjarskóli Kennarar: Anna Leif Elídóttir og Edda Agnarsdóttir
Grandaskóli Kennari: Birna Margrét Júlíusdóttir
Grundaskóli Kennari: Bryndís Siemsen
Hamraskóli Kennarar: Linda Birgisdóttir og Hildur Gylfadóttir
Hólabrekkuskóli Kennari: Oddný Halla Haraldsdóttir
Myllubakkaskóli Kennari: Sigga Dís
Réttarholtsskóli Kennari: Maríella Thayer
Ásmundarsafn - Treflagjörningur
Miðvikudag 21. apríl kl. 12:40 - 14:00
Listaverkið Tröllkonan í garðinum við Ásmundarsafn er kvefuð og því munu nágrannar hennar, nemendur úr Laugarnesskóla, klæða hana í trefla síðasta vetrardag.
Þegar treflagjörningnum er lokið og hún finnur hlýjuna umlykja sig eru treflarnir fjarlægðir og Tröllkonan fyllist hugrekki og krafti til að takast á við klifrandi krakka í blíðviðrinu í sumar.
Kjarvalsstaðir - Sendu póstkort til Færeyja
Sunnudag 25. apríl kl. 14 - 16
Sendu færeyskum krökkum póstkort! Kannski fá Ísakur, Maria, Jógvan, Flykra Fríða eða Óluva kort frá þér sem unnin eru í vatnslita- og póstkortasmiðju í tengslum við sýninguna Blæbrigði vatnsins.
Börn á aldrinum 7 til 12 ára geta málað á sérstakt póstkort með vatnslitum, skrifað á það og fengið frímerki til að senda kortið til færeyskra jafnaldra í skólum í Klaksvík og Argir. Smiðjan er hluti af dagskrá Færeyskrar menningahátíðar á Kjarvalsstöðum.
Nánari upplýsingar um hátíðina: www.barnamenningarhatid.is.
Prenta Til baka