Fréttir / tilkynningar

Listasafn Islands

Færeysk barna og fjölskylduhátíð. Kjarvalsstaðir, sunnudag 25. apríl kl 14 - 18

An upcoming exhibition

Trölla PéturFrændur okkar Færeyingar eru í aðalhlutverki á barna- og fjölskylduhátíð Kjarvalsstaða næstkomandi sunnudag. Meðal þeirra sem koma til landsins af þessu tilefni er hinn ógnvekjandi en hjartahlýi Trölla Pétur, sem er ein vinsælasta hetja færeyskra barna. Á hátíðinni er börnum boðið að mála og skrifa  póstkort til jafnaldra sinna í Færeyjum, stignir verða færeyskir þjóðdansar, flutt erindi um Færeyingasögu og að lokum boðið upp á færeyskt góðgæti.


 
Dagskrá:
 
14:00 Hátíðin formlega sett
14:00-16:00 Vatnslitir og póstkortasmiðja. Sendu jafnöldrum þínum Ísak, Mariu, Jógvan, Flykru Fríðu eða Óluvu í Klaksvík og Argir kort sem þú getur málað og skrifað á í vatnslita- og póstkortasmiðju Kjarvalsstaða. Smiðjan er ætluð 7 – 12 ára börnum og fá þau frímerki á staðnum.
14:30 Ólafur Halldórsson handritafræðingur flytur erindi um Færeyingasögu.
15:00 Söngtríó frá Færeyjum leikur hressileg lög.
16:00 Trölla Pétur kemur í heimsókn ásamt ömmu sinni alla leið frá Færeyjum og það er næsta víst að það er engin lognmolla í kringum þau! Trölla Pétur er eftirlæti allra færeyskra barna.
16:30 Færeyskur þjóðdans. Allir velkomnir að stíga á stokk og læra réttu sporin undir handleiðslu reyndra dansara.
17:15 Reiddar fram færeyskar veitingar og gestum boðið að bragða.
18:00 Dagskrárlok.
 
Allir velkomnir!

Hátíðin er samstarfsverkefni Listasafns Reykjavíkur, Vestnorræna ráðsins, Færeysku ræðismannsskrifstofunnar, Færeyingafélags Reykjavíkur, Hótel Arkar, Smyril Line, Atlantic Airways og Flugfélags Íslands.



Prentað af vef Listasafns Reykjavíkur, www.listasafnreykjavikur.is þann 17.11.2012