Fréttir / tilkynningar
Erkihertoga- og sígaunatríóin. Kjarvalsstaðir, miðvikudag 28. apríl kl. 12.15
An upcoming exhibition Listasafn Reykjavíkur og Tríó Reykjavíkur hafa um nokkurt skeið verið í samstarfi um ókeypis hádegistónleikaröð á Kjarvalsstöðum við góðar undirtektir. Á miðvikudaginn verður sjónum beint að tveimur þekktum tríóum og dúett fyrir selló og píanó. Tónleikarnir eru um 45 mínútur að lengd. Tríó Reykjavíkur skipa Guðný Guðmundsdóttir fiðla, Gunnar Kvaran selló og Peter Maté píanó. Á efnisskrá eru Sígaunatríóið eftir J. Haydn 1. þáttur úr Tríói í B-dúr eftir Beethoven og Elegia eftir G. Fauré, sem Gunnar og Péter leika. Þess má geta að tríó Beethovens í B-dúr eða Erkihertogatríóið eins og það er gjarnan nefnt er samið 1811 og er eitt af frægustu verkum tónskáldsins.
AÐGANGUR ER ÓKEYPIS OG ALLIR VELKOMNIR TRÍÓ REYKJAVÍKUR Tríó Reykjavíkur var stofnað árið 1988 af Halldóri Haraldssyni píanóleikara, Guðnýju Guðmundsdóttur fiðluleikara og Gunnari Kvaran sellóleikara. Árið 1996 tók Peter Máté píanóleikari við af Halldóri. Á ferli sínum hefur tríóið komið fram á fjölmörgum tónleikum víða um Ísland og einnig farið í tónleikaferðir til Danmerkur og auk þess komið fram í Þýskalandi, Finnlandi, Prag og London og einnig leikið í hinu nýja tónlistarhúsi Grænlendinga. Hljóðritanir með leik tríósins hafa verið leiknar víða í evrópskum útvarpsstöðvum. Geisladiskur kom út árið 2000. Meðlimir tríósins eru allir kennarar við tónlistardeild Listaháskóla Íslands og er tríóið staðarkammerhópur skólans. Tríóið fór í sína fyrstu tónleikaferð til Bandaríkjanna árið 2003, þar sem það kom m.a. fram í beinni útsendingu á klassísku útvarpsstöðinni í Chicago. Sumarið 2006 fór Tríó Reykjavíkur í tónleikaferð til Suður-Frakklands. Tríó Reykjavíkur var útnefnt tónlistarhópur Reykjavíkurborgar fyrir árið 2007 og hlaut þá jafnframt þriggja ára styrk frá borginni til starfsemi sinnar.
Prentað af vef Listasafns Reykjavíkur, www.listasafnreykjavikur.is þann 17.14.2012
|